Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Öll eggin í sömu körfunni!

Ég verð að segja að vitleysan í þessu er sú að þau hafi ákveðið að fara á sömu vélinni, ég hefði sent þau á sitthvorri.  Sérstaklega í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu þessa dagana.
mbl.is Sendu ráðherrum leiðbeiningar með hraðpósti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjartað mitt lifir lífinu

Gleðst líka yfir mörgu. 

Hjartað mitt á heima á góðum stað, hjúpað sjálfi sem treystir sér til þess að leyfa því að ráða.  Þegar ég geri það eru mér allir vegir færir, opnir, og velkomnir.  Þeir liggja til allra átta- í báðar áttir- og það er mesta snilldin.

Ég fékk að taka þátt í að breyta lífi fólks í dag.  Tveir ungir krakkar að byrja að búa, voru hjá mér að leita að sinni fyrstu íbúð.  Æðislega geðugir krakkar af erlendum uppruna.  Ekki laust við að ÉG fengi í hnén þegar ég sá hvernig hún horfði á Hann.  Rámaði eitthvað í að svona hafi verið horft á mig endur fyrir löngu.  Hana langaði svooooooo í íbúð sem var ekki laus, -(eitthvað rámaði mig nú líka í að hafa sótt tunglið og sólina á sínum tíma, fyrir eina svona litla dökkhærða) hún sagði samt ekki mikið en fór þangað aftur og aftur, kom með stjörnur í augunum til baka og ég þurfti ekki að skilja baun til að finna hvað hún var að segja.  Ég fann hvað mig langaði til að láta þau hafa þessa íbúð, svo ég ákvað að hreinlega gleyma því að ég hafði verið búinn að lofa henni öðrum.  Sagði þeim að þau gætu fengið þessa íbúð, og áður en ég vissi af var ég búinn að bjóða þeim hálfa búslóð, örbylgjuofn og ég veit ekki hvað.

Varð ekki var við að fætur þeirra snertu stigann niður á útleiðinni, og hlakka til að fá þau í hús e. helgina.   


Algerlega óþolandi þessi LÖG

Hverjir skyldu það nú vera sem setja lög?
mbl.is Vill stjórnarskrárbreytingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar landið tapar B 747 á dag!

Finnst Álfheiði Ingadóttur við hæfi að nýta sér mjólkurrútuna.  Alveg ótrúlegur málflutningur í kringum þetta mál allt saman.  Minnist þess samt ekki að mikið hafi borið á skrifum um Chile ferð dómsmálaráðherra og fleiri gæðinga til að undirrita kaup á bát!
mbl.is Ferðamáti gagnrýndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að missa mann!

Uppbaðaður úr athygli í dag þegar heill kór af kvenfólki missti mann-migCool.

Var í sambandi - við fjarsölu Flugleiða að vísu,- símasambandi!, er þar að tala við konu sem biður mig svo að bíða augnablik og áður en ég veit af er mér sagt að ég sé kominn á aðra- konu sem kannast ekkert við mig, hún gefur mig svo þeirri þriðju sem segist vita að ein hafi misst mann rétt í þessu en hún sé því miður upptekin!  Ekki mikil sorg á þeim bænum verð ég að segja.  En mikið er gott að konur þarna geti deilt svona með sér mönnum og sent þá hver á aðra, ég tala nú ekki um ef einhver þeirra missir nú mannHaloÞessi þriðja fékk svo hjá mér símanúmerið!!!, að sjálfsögðu með það fyrir augum að láta númer 1 fá það trúi ég.


Hvar eru "fulltrúar"sjálfstæðismanna á þingi?

Mér er sko alveg skítsama hvaða skoðun þeir hafa á málinu.  En hafi þeir enga,  þá  hafa  þeir heldur ekkert að gera þarna .   Eins og ég hef áður sagt finnst mér þingflokkinn heldur hafa sett niður undanfarin ár vitsmunalega séð.

Kannski hef ég bara ekkert gott af að hlusta á það sem hugsanlega kæmi út úr þeim mörgum hverjum, varðandi þetta mál, sérstaklega ekki tindátunum! 


mbl.is Ítrekar efasemdir um skipulagsbreytingar á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband