Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

That´s life.....

Misjafnt hvað er lagt á fólk.  Hef verið ótrúlega heppinn í gegnum tíðina með mig og mína.  Var síðast í gær að heyra þvílíkar hörmungarsögur af fólki sem ég þekki. 

Held að aldrei sé hægt að vera of þakklátur fyrir heilsuna, sína og sinna nánustu.  Allt annað er hjóm eitt í samanburði, og ég dáist að fólki sem hefur staðið, ekki nauðsynlega upprétt neitt, heldur bara staðið í gegnum stærstu áföllin sem dunið hafa á þeim. 

Varð þeirrar gæfu aðnjótandi fyrir mörgum árum síðan að njóta samvista við marga aðstandendur barna, í u.þ.b. mánuð á Landspítalanum.  Það gjörbreytti allri sýn minni á lífið, öllu verðmætamati, öllum viðhorfum til lífsins.

Sendi öllum í þessari baráttu bestu kveðjur.

ÞETTA LÍÐUR LÍKA HJÁ!

Ein uppáhaldssetningin mín og virkar á allt.


Leiði.

Er í mínum huga þekkt sem hinsti bústaður frekar en hugarástand svona dagsdaglega.  Legg mig fram um að sjá björtu hliðarnar, og hinar þessar dökku sem ég kemst ekki hjá, sit ég hvort eð er uppi með fyrr eða síðar.

Leiði er svona eitthvað sem mig langar ekkert - í !

Það er einhvern veginn mikið uppbyggilegra að hugsa um nýju eyrnalokkana í afastelpunni, en hvern andskotann bankastjórinn sé að gera í fríi þegar á þarf að halda- til dæmis.

Rjúka út í buskann og hjálpa öðrum- ef maður getur ekki hjálpað sjálfum sér!

Hinu er ekki að neita að það hefur verið svona skýjað með köflum í lífinu mínu undanfarna daga -og ég ekkert á neinu skýinu sem farið hefur hjá- bleiku, bláu, eða gráu. 

 


Ákvörðun fyrir lífið!

Nú er kominn tími til að taka ákvörðun fyrir lífið.  Hvort það eigi að eyða meiri tíma í viðnámi, mótbárum, efasemdum, ströggli, ótta, flótta, gremju, og einsemd, eða "join the party" og lifa lífinu lifandi!  Þú hefur alveg séð nóg til að meta hvorn kostinn þú telur henta þér betur, hvora leiðina þig langar að fara.  Þetta er í raun mjög einfalt!  Veldu! 

Í öðru horninu eru þeir sem þú ert kær í dag, í hinu þeir sem þú ert kær alltaf!

Svo er það sá sem leggur þig nánast í einelti, -þolinmóðasti, þrautseigasti, og einbeittasti vonbiðill sem til er.  Hann mun taka hverju því sem þú réttir að honum, mættur við hlið þér ef þú hrasar- tendrar elda sem enginn veit hvort eða hvenær brenna út!  Þú ert búin að reyna að hafna honum með öllum hugsanlegum rökum, hunsa hann og niðurlægja á allan hátt- en án árangurs. 

Kannski er tími kominn til að sýna honum að hann eigi ekki sjéns, þú sért komin í annað samband.

Hringdu!   


Laust pláss!

Er að verða búinn að koma mér á þann stað sem ég vil vera, með þeim sem mér þykir vænst um.

Uppgötvaði mér til mikillar ánægju að ég á laust pláss, bæði í hjartanu og við hliðina á mér!

Var nú búinn að vita svo sem af þessu lausa plássi við hliðina á mér um nokkra hríð sjáið þið til, en hafði ekki gefið hinu mikinn gaum.  Það er svo aftur annað mál að til að ná að hliðinni að mér þarf að fara í gegnum fjóra hreinsunarelda, ég hef að vísu bara séð hvað þrír geta sviðið stélfjaðrirnar illa!!!

ROTFL

Hjartað er hins vegar óútreiknanlegt og aldrei á vísan að róa þegar það er annars vegar:-)  CupidGerir bara nákvæmlega það sem því finnst, og svei mér ef það er ekki að gera það nokkuð gott þessa dagana!






Ekkert orðið að engu!

Það er eins gott að ekki komi til eldgoss á svæðinu, eða alvöru jarðskjálfta, það hlýtur að  vera óviðunandi að mati Umhverfisstofnunar eða Skipulagsstofnunar og þarfnast athugunar við af einhverjum blómálfum sem eftir verða nú líklega á landinu þegar búið verður að friða það. 

En hvað með Árnastofnun er ekkert hægt að virkja hana neitt?  Það væri kannski leiðin að láta fólk lesa sér til um hvernig óskastaða þess var- fyrr á öldum, svo það sé vel undirbúið! 

Svo eigum við líka svo góða þýðendur, sem geta þýtt ástandið á milli þess sem dreypt er á hverafjallagrasagroggi sem verður Iceland speciality fyrir hvern þann sem villist hingað.


mbl.is Hætt við Bitruvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sleppa því liðna lausu!

Er búinn að vera veltandi vöngum yfir sendingu sem ég fékk um daginn og er búin að gera veröldina nýrri, bjartari, hlýlegri og vistvænni á allan hátt.W00t

Alveg ótrúlegt hvað hægt er að festast í að reyna að halda í eitthvað sem er löngu farið, löngu liðið.  Hvað hægt er að eyða mikilli orku í að reyna að endurlifa augnablik fortíðar, -einhvern tíma, sem löngu er liðinn, og hafa svo ekki kraft til þess sem er og getur orðið.

Þessi endurupplifun getur aldrei orðið annað en hjárómagarg- útvatnað andartak, og svo hellast vonbrigðin yfir- enda tilraun dæmd til að mistakast.   


Afi minn fór ofan á brauð!

-Einhvern sumardaginn...... .

Oft er það þannig að það skiptir ekki öllu máli hvað þú segir heldur hvernig þú segir það.

Afastelpan var að syngja þetta um daginn, og þótt textinn væri kannski ekki alveg eftir bókinni, var framburðurinn réttur, meiningin góð, framkvæmt af innlifun, og í réttu lagi.InLove

Þannig er það líka oft með bókstaflega túlkun margs í lífinu  , oft er betra að láta vaða eftir bestu getu en bíða eftir fullkomnun aðgerðalaus.

Það má lengi laga textann, en syngdu! Syngdu!Singer 2






Örin eru sigurtákn alls í lífinu!

Að vera með unninn leik í höndunum og tapa honum- án þess að mótherjinn skori, er afskaplega undarleg tilfinning.  Þetta er svona eins og að sjá sjálfan sig hverfa á skjánum eins og útrunnið ár á gamlárskvöld, og fá ekki rönd við reist.

Eftir sitja sárin, sem gróa ef tími gefst til, og verða að minningum, örum,- merkjum þess að þetta lifði ég líka af!

Þó leikurinn hafi tapast er þó huggun í því að hafa spilað hann til sigurs, verið þáttakandi á sviðinu- gert hluti sem gengu upp, í algjörlega fáranlegu ástandi.

Reynsla og þekking er oft dýru verði keypt, þannig er um þessa viðureign.

Að morgni veit enginn næsta næturstað, og þannig er það með lífið líka-allt er breytingum háð!

Á morgun er nýr dagur, nýtt upphaf, nýr leikur.  Og að sjálfsögðu er hver dagur sóttur til sigurs.

Ég er þáttakandi!- ekki áhorfandi!- í lífinu, sem er annars að fara vel með mig, og mína.

 


Lýðskrum!

Nákvæmlega og ekkert annað, og gjörsamlega alveg andskotans sama hver á í hlut.  Hlustaði aðeins á Ögmund ræða þetta greykallinn, hann er svooooo fastur í  síðustu öld að maður getur æpt.  

Hundskist þið nú til þess þingmenn að taka fyrir mál sem skipta þjóðina máli einu sinni og hættið að plata hana með einhverjum svona krúsídúllum.  

Við höfum nefnilega t.d. ekkert að gera við umhverfi ef við erum dauð, það er fjandans sama hvað einhver er með í laun- það verður aldrei annað en skítur á priki, við hliðina á því sem nú er að ske í þjóðfélaginu.

Þjóðin þarf hins vegar að vakna og hætta að láta rugla sig með hraðréttum eins og 1944, sem eru hvort eð er algjörlega vonlausir enda orðnir vel gamlir!!! 


mbl.is Höfðu ekki heyrt af fyrirhuguðu eftirlaunafrumvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland brennur!

Og það eina sem ríkisstjórnin er krafin svara um af fjölmiðlum er eftirlaunafrumvarpið, og stimpilgjöld!!!

Mér er svo alveg hreint skítsama hver eftirlaun þingmanna eru.  Það er mér hins vegar kappsmál að fá á þing fólk sem hefur eitthvað til málanna að leggja, og að minnsta kosti hvolpavit, frekar en fólk sem samþykkir eitt í dag, annað á morgun og afnemur svo allt saman þriðja daginn. 

Stimpilgjöld vil ég frekar greiða en þessar vaxtahækkanir sem nú eru að dynja yfir okkur og nema mikið hærri fjárhæðum fyrir heimili landsins.

AAAAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRRRRRRGGGGGGGGGGGGGGG!  Þegar mér verður hugsað til aðgerðaleysis Seðlabankans.  Þeir kunna bara á einn hnapp- stýrivexti, sem enginn er að kaupa lengur af því að þeir eru búnir að missa trúverðugleikann erlendis sem og hér heima. 


mbl.is Eftirlaunalög Alþingis verða felld úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband