Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009
Mánudagur, 16. febrúar 2009
Sólarlandaferð!
Vonandi notar fólk sér þetta til upplyftingar en ekki til að henda í hítina hjá lánastofnunum sem það ræður hvort eð er ekkert við og gleypir þennan hugsanlega 600þúsund kall bara í lögfræðikostnað, og ekkert fer nokkru sinni inn á lánin anyway!
Nær væri að fólki væri gert heimilt að ávísa þessum fjármunum sem það á þarna til lánastofnana og þeim væri gert að taka þær inneignir á nafnverði þótt þær komi ekki til greiðslu nema í áföngum.
Að takmarka þetta svo við eina milljón króna er náttúrulega bara kjaftæði.
Hvað er ég svo að æsa mig yfir þessu, sem verður hvort eð er aldrei að lögum og kemst ekkert í framkvæmd?
Geti tekið 1 milljón úr séreignasjóðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 16. febrúar 2009
Allir sauðdrukknir!
-Undir þessari tveggja tíma ræðu sem ég hélt í hádegisverðarboði Danska sendiherrans! Hvern fjandann var hann líka að bjóða mér ef þeir vildu ekki hlusta á MIG? Að þeir hafi svo heyrt það sem ég sagði svona illa! -allir! er engu öðru um að kenna en japanska hrísgrjónavíninu! Þeir hefðu heyrt allt annað ef þeir hefðu bara drukkið bjór!
ÉG hef nú ekki lagt það í vana minn að bulla EKKI í svona boðum, þar sem fulltrúar erlendra ríkja eiga í hlut. Enda hef ég farið þeirra erinda um víða veröld til að kynna málstaðinn MINN og þjóðarinnar allrar. Ég er líka þjóðin sjáið þið til og framkoma sendimanna erlendra ríkja í minn garð er fyrir neðan allar hellur sé tekið mið af því!
Við þær aðstæður sem nú ríkja í þjóðfélaginu hef ég meira að segja sagt Dorrit að hún verði að fljúga á ALMENNU farrými! Svo við tökum svo sannarlega þátt í kjörum þjóðarinnar hjónin.
Á svig við sannleikann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 14. febrúar 2009
Hin mikla aðgerðastjórn!
VG og Samfylkingar við undirleik Framsóknarflokksins er mætt að sögn Jóns Bjarnasonar. Hún stöðvar fjárnám, nauðungaruppboð og aðfarir til að bjarga bændum og búaliði auk almúgans á mölinni. Þessi stjórn býr víst í hugskoti Jóns og virðist vel haldin.
Í hverju aðgerðastjórn er fólgin, virðist ekki skipta neinu máli, orðið lítur vel út og fer vel í munni Jóns.
Aðrir landsmenn, ég þar með talinn, hafa ekki orðið þessa varir.
Þingheimur samþykkti í nóvember að þrengja heimildir lögmanna til að krydda innheimtur sínar. Það tók þó ekki gildi fyrr en um áramót, sem þýddi einfaldlega að allir sópuðu út innheimtubréfum í gríð og erg fyrir þann tíma.
Svo tók steininn úr í janúar þegar þingmenn samþykktu önnur lög svipaðs eðlis, og gáfu vinum sínum lögmönnum tvær vikur eða svo til að hreinsa borðin sín enn einu sinni.
Svo geta þessir afdalavitringar tjáð sig eins og þeir séu snillingar!!! Fæ alveg hroll.
Umbætur á fjármálakerfi brýnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 13. febrúar 2009
Fávitar!
Væri nær að krefja ráðamenn um aðgerðir sem aldrei koma, sama hvaða ríkisstjórn er við völd!
Nei Davíð er málið!
En þegar Davíð er farinn? Hverjum á þá að kenna um? Að allt hafi dregist svo af því að ekkert gekk að losna við Davíð?
Hörður Torfason heldur betur farinn að pissa í skóinn sinn, þjakaður af hatri á einum manni! Nú eða ...
Raddir fólksins funduðu með forsætisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 13. febrúar 2009
Til bjargar þjóðinni?
Bölvaður bullukollurinn! Að vera að svona helvítis föndri, meðan allt er á leið til fjandans.
Leggur til afnám laga um eftirlaun ráðamanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 12. febrúar 2009
Last man standing!
Þetta er árangur sem ekki verður leikinn eftir. Nú verðum við að tryggja 1sta sætið!
Koma SVO!!!
Davíð Oddsson á vafasömum lista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. febrúar 2009
Af hverju drapstu hann?
Jóhanna hringi í Gordon Brown | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. febrúar 2009
Steingrímur!
Áttu ekki hönk upp í bakið á vini þínum hinum sænska Wallenberg, eftir að þú keyptir seiðaeldisstöðina hans sem kynbótastöð árið 1991 á 157milljónir króna síðast þegar þú varst ráðherra? Geturðu ekki fengið hann til að koma og redda þessu fyrir okkur?
Silfurlax hf., manstu! Með Steingrími "heilaga nú til dags" Hermannssyni forsætisráðherra þáverandi! Alveg án þess að segja nokkrum frá því! Manstu?
Skiptir bara akkúrat engu máli í dag! Í dag skiptir máli að koma þjóðinni í gang aftur. Það gerist ekki með einhverjum söguskýringum. Hvort 94-96-98% eru þessum eða hinum að kenna er ekki málið. Að koma hlutum í gang er málið. Það er ekki að gera sig á þinni vakt greinilega, og Jóhanna er svo busy að fylgjast með hvenær Davíð mætir í vinnuna að henni verður heldur ekkert úr verki.
Spurningin er nú sú hversu lengi Framsóknarflokkurinn er tilbúinn að verja stjórn sem er föst í bakkgír og hagsmunspoti.
Hræðilegt til að vita að við gætum þurft að bíða fram í maí eftir byrjunarreitnum:-S
Niðursveiflan meiri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 11. febrúar 2009
Þarf frekari vitna við?
Standa við afsagnir sínar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 11. febrúar 2009
FRÁBÆRT!
Ein spurning þó!
Hvar eru farþegarnir?
Keflavík meðal bestu flugstöðva í heimi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Bara í dag
Eldri færslur
- Nóvember 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar