Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Alvöru!!!

Alltaf verið í alvörurekstri og oft ansi gjaldþrota.  En sett sjálfan sig að veði og sloppið fyrir horn.  Nú sýnist mér hann eiga nóg til þess að geta tekið út fé úr sínu eigin félagi, hann er ekkert að "fá" neitt hvorki gefins eða öðruvísi.
mbl.is Røkke fær 9 milljarða í vasann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég líka!

Vissi bara ekki að hann væri í glímu með þetta!  Allavega ekki í réttum búning!!!

Að það standi yfir einhver endurreisn er gott, verst að við verðum ekkert vör við það þjóðin!!!

Kannski við verðum öll farin þegar sú endurreisn kemur upp á yfirborðið!


mbl.is Meiri áhyggjur af yfirstandandi glímu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Möppudýr dauðans!

Senda hann aftur í skólann!  Höfum ekkert við svona snillinga að gera.  Ráðherra sem stimplar þjóð sína sem óreiðufólk á ekkert inni. 

Burtu með hann!


mbl.is Getum staðið við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samgöngur á Siglufjörð í ólestri!

Verður nú að tryggja þeim almennilegan aðbúnað þegar þeir koma til Reykjavíkur greyin eftir að vera búnir að klofa snjóinn upp í mitti til Akureyrar til að komast suður.  Þess vegna er þessi samgöngumiðstöð alveg bráðnauðsynleg!  Vaðlaheiðargöng eru líka mikið meira forgangsmál en einhverjir vegarspottar út úr höfuðborginni, þetta borgarlið getur bara verið heima hjá sérDevil

 Það má færa rök fyrir því að þessir þrír bílar sem nota göngin á ári eru mikið verðmætari en þessar druslur sem borgarbúar aka um á -öllum til ama á annatíma!


mbl.is Tvöföldun aftar í röðinni en jarðgöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

sirkabáthérumbilnæstumþví:-S

Má ekki á milli sjá hvort er meiri vitleysa dómurinn eða skrifin á Íslandi um hann :-D  Nema gengisvitund mbl.is sé orðin svona rosalega brengluð -hvað megum við hin þá segja :-Þ
mbl.is Skammast sín fyrir aðild að ofursekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STOPP!

Landsvirkjun verður bara að kaupa upp þessar eignir sveitarfélaganna.  Annars er þetta enn einn naglinn í fleyið sem flytur okkur burt af skerinu, fyrr en seinna!
mbl.is Kanadískt félag kaupir í HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

CandyFlos!

Bráðnar nú Flosi og er orðinn að klessu.  Ætli þurfi að þrífa hann úr stólnum?  Eða sér hann sóma sinn í að fjarlægja sig sjálfur?
mbl.is „Og þá erum við í vanda"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir í bátana!

Fávitagangurinn er slíkur að ég er orðlaus og það gerist ekki mjög oft.  Samanburðurinn við önnur lönd er sérgrein VG og þar kemst enginn með skóna þar sem þeir hafa reimarnar á sínum snærum.

Nú á að verðleggja landið út af ferðakortinu aftur, djöfulinn höfum við líka að gera með ferðamenn?

Hvenær ætla þessi fífl að fatta að það greiðir enginn neitt af engu!  Engar tekjur -ekkert vín -ekkert tóbak -engir barir -ekkert ríki -engar tekjur til ríkisins.


mbl.is Boðar auknar álögur á áfengi og tóbak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var nú búinn að gleyma hvað hún hét!

En stimplaði sig vel inn aftur með þessum afar brýnu aðgerðum í þágu fólksins í landinu :-P
mbl.is Gjalddagar útvarpsgjalds þrír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 430

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband