Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012

Stétt er sett! Hin gráa stétt!

Það rann upp fyrir mér í kvöld hvers vegna enginn hefur æmt eða skræmt yfir aðgerðum ríkisstjórnarinnar síðustu misseri.  Það voru bara hreinlega allir svo óttaslegnir, illa farnir og persónulega illa útleiknir að menn höfðu bara hljótt um sig og báru harm sinn í hljóði. 

Vammlausasta fólk tapaði öllu sínu í hruninu og vildi og gat ekki horfst í augu við það. 

Enn aðrir héngu á bílunum sínum, húsunum sínum og sumarbústöðunum þar til allt var búið, og borguðu það sem upp var sett á meðan. 

Bankarnir djöfluðust á fólki og sögðu því að á meðan það greiddi vexti og afborganir, vexti-þegar ekki var lengur til fyrir afborgunum, og síðast það sem þau gætu til að halda í horfinu, þá sæi fólkið euforiu, ljósið eilífa! 

Þegar svo búið var að mergsjúga fólkið, var bíllinn tekinn fyrst og fólkið streðaði aðeins meir og greiddi séreignasparnaðinn svo húsið yrði ekki tekið. 

Nú er svo komið fyrir mörgum að þeir hafa enga leið út.  Undanfarin þrjú ár hef ég séð misjafnlega ógeðfelld bréf frá helstu Lögmannsstofum landsins þar sem jafnvel er yfirdregið með rauðu að þau verði gerð gjaldþrota.

Ég vil ítreka það að ég sé verstu dæmin, aðrir leita annarra leiða, og tekst það -til hamingju þið Grin

því miður fyrir sig og sína aðstandendur, þá eru önnur verri!

Ætlaði að stroka þetta hérna að ofan út en ég á erfitt með að persónugera þetta fólk sem ég hef verið að reyna að hjálpa. Bara þetta orð "dæmi" pirrar mig-eins og við séum ekki að tala um fólk.

Nú er svo komið að nornabrennur brenna um borgina vegna hæstaréttardóms sem felldur var föstudaginn.

Spurning mín er: Hverjir hefðu gert annað?

Spurning #2 er: ef ég hefði verið á þessum stað, af hverju forðaðirðu þér ekki fyrr? 

Þetta var ljóst í febrúar! 

Svarið við þessari spurningu get ég svarað fyrir Baldur ; Íslandi næstum því allt!

Þegar upp er staðið hafa aðrir ekki staðir sig betur en Baldur Guðlaugsson í hruninu, fyrir eigin pening.

HVAR ER RÍKISSTJÓRNIN?

 

 

 


Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband