Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Fagmannleg vinnubrögð í fyrirrúmi!

Jón Baldvin hefði nú ekki verið lengi að láta Kidda rót skutla þessu í Svarta Pétur á Bessastöðum!

Algjörlega allt önnur saga hvort hann hefði farið með pappírinn til baka án fjölmiðlaumfjöllunar og blaðamannafundar forseta.

KLÚÐUR!, Jóhanna af Örk!

OG þetta er bara eitt blað! 

OMG!

Eða verður kannski ekkert kosið hér neitt á næstunni landsmenn góðir?

Hún tekur örugglega Davíð á þetta kellingarbeyglan hún Jóhanna eða þá Ingibjörg eða þá önnur hvor eða báðar eða ÖssurShocking


mbl.is Ekki hægt að hefja utankjörstaðaatkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Okkur vantar skipstjóra!

Helst nótaskipstjóra sem þarf að velja hvernig hann kastar og taka sénsinn á að hann hafi rétt fyrir sér.

Skólar, vísindastarf og nýsköpun leggja grunn að framtíðinni.  Í dag stöndum við frammi fyrir vanda sem þarf að takast á við á hverjum degi ef árangur á að verða einhver.  Enginn þeirra sem útskrifast í dag bjargar íslenskri þjóð þetta árið.

Verst að stjórnmálamenn eru ekki að gera það heldur.

Við höfum heldur ekkert að gera með marga skipstjóra á skipinu, tvær Jóhönnur í hverju rúmi.

Þú gerir aðeins ein mistök með því að gera ekki neitt!  Eigum við að horfa uppá það mikið lengur hjá stjórnvöldum.  Er ekki betra að reyna allt til bjargar og mistakast í einhverjum atriðum sem má þá laga síðar, taka ákvarðanir til bjargar mörgum á kostnað fárra.  Frekar vil ég vera dæmdur fyrir eitthvað sem ég geri en það sem ég gerði ekki!

Óska þeim til hamingju sem útskrifast í dag!  Vonandi verður starfsvettvangur ykkar Ísland, vonandi lifum við þetta aðgerðaleysi af!


mbl.is Leiðir út úr vandanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavik international!

Fegurðin talar pólsku!

Peningarnir norska-ensku!

Sannleikurinn er Darling!

Formenn stjórnmálaflokka fara í aðgerðir til útlanda!

Eru íslendingar kannski bara svona mono, ljótir, illa talandi, og óhæfir? 


mbl.is Magdalena Dubik kjörin ungfrú Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áttavilltar í vaskafati!

Stefnulausar og segjast vera að stefna í rétta átt!  Einmitt!  Vill þjóðin þessa áttleysu? Er áttin sú að endurheimta bíla og dót á spottprís og knésetja fólk fyrir restinni með því að bjóða ofan af því?

Er áttin sú að bíða af sér storminn og vona að einhver lifi af?

Ingibjörg Sólrún tók á sig rögg í janúar reif sig upp úr rúminu og gerði Jóhönnu að forsætisráðherra!

VÁ!

Verst að þjóðin greiðir þetta brölt dýrasta verðinu!  Með aleigunni.


mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

USA mesta hvalveiðiþjóð heims!

Það heyrist hinsvegar lítið og þeir eru nú ekki meðvitaðir um það sjálfir blessaðir.  Engu að síður staðreynd, hvernig sem þeir reyna svo að kjafta sig frá því.  Frumbyggjaveiðar, landnemaréttur og fleiri fín orð yfir veiðar þeirra, auk þess sem smáhveli ýmis eru einfaldlega ekki hvalir í þeirra augum.  Aðeins Willy og aðrir nafngreindir félagar hans sem Greenpeace seldi hlut í á sínum tíma, hljóta þá nafnbót.
mbl.is Bandaríkin fordæma hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vil yfirlýsingu frá Ögmundi!

Um að hann takist á við heilbrigðisráðherraembættið komi það í hlut VG eftir kosningar!

Þetta sem hann er að föndra við núna geta allir gert.

 


mbl.is Fallið frá sameiningu heilbrigðisstofnana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá getur ríkisstjórnin farið í frí!

Ríkisstjórnin getur þá væntanlega farið í frí til Tenerife þar sem búið er að ráða nýjan Seðlabankastjóra.

 


mbl.is Nýr seðlabankastjóri settur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svarti Pétur!

Snöggur sá gamli.  Við skulum vona að það haldist eitthvað áfram.  Af nógu verður að taka á næstu mánuðum, ef fer sem horfir.
mbl.is Búinn að staðfesta lögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað svo?

Átta þúsund börn eiga orðið atvinnulausa foreldra.  Bílarnir eru teknir af þeim fyrir slikk -af ríkinu!  Fyrirtækin farin að falla í valinn á hverjum degi og sennilega er skriðan orðin of stór til þess að við hana verði ráðið!

Súpueldhús, er það sem ég myndi fara að skipa nefnd í að setja upp.  

Seðlabankinn gerir ekki neitt, og nýr seðlabankastjóri er ekki að fara að skammta súpu neins staðar!


mbl.is Seðlabankafrumvarpið samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband