Mánudagur, 21.7.2008
Öskrandi ljón -varúð!
Er í þvílíka gírnum þessa dagana. Eins gott fyrir fólk að vera ekki mikið að þvælast fyrir -það fá sko allir sinn skammt sem eru eitthvað að bulla í mér.
Rétt skal vera rétt syndrómið hófst á fimmtudaginn og Guð einn veit hvenær því lýkur.
Ánægður samt með að missa mig ekki alveg útbyrðis, og þeir sem í mér lenda eiga það nú allir inni á einn eða annan hátt sjáiði til:-)
Tók nokkuð góða rispu fyrr í kvöld og fláði einn sem veitti nú ekki af fláningunni. Nokkur atriði verða tekin fyrir á morgun, verst að ég fékk flís í aðra framloppuna sem veit ekki á gott fyrir flísaeigandann upprunalega.
Ég hef annars ekki hugmynd um hvaðan allur þessi kraftur kemur en gott að hafa hann engu að síður. Vona að hann endist mér viku í viðbót, þá er ég líka farinn í frí. Vinkona mín ein sem er búin að fá alveg nóg af mér greinilega, fann leið til að losna við mig.
Annars eru dæturnar búnar að finna frosk í Florida, hálfnaðar með mallin og hálfblankar og bíða nú eftir marshall aðstoð. Þær ná þá einhverjum lit kannski á meðan:-)
Athugasemdir
Ég vildi sagt hafa helling,sleppi því samt.
Birna Dúadóttir, 21.7.2008 kl. 09:22
Er Björninn ekki bara svangur ? Væri ekki ráð að fá sér snæðing, og leggjast aðeins undir feld. Réttlætið á ekki alltaf rétt á sér sjáðu.
En ljónin garga aðeins af hungri, veðieðli, og jú kalli nátturunnar á milli fóta.
Fáðu þér samloku.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 10:15
Samlokan en náttúrulega einfaldasta lausnin! Klikkar sjaldan og kostar ekki meira eftir að hún er búin, rífur ekki kjaft og heimtar ekki neitt:-) Thanks, Queen of the Faroway islands
Björn Finnbogason, 21.7.2008 kl. 13:14
Gjörðu svo vel, þessi sérlæga ráðgjöf var í boði hússins.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 19:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.