Ákvörðun fyrir lífið!

Nú er kominn tími til að taka ákvörðun fyrir lífið.  Hvort það eigi að eyða meiri tíma í viðnámi, mótbárum, efasemdum, ströggli, ótta, flótta, gremju, og einsemd, eða "join the party" og lifa lífinu lifandi!  Þú hefur alveg séð nóg til að meta hvorn kostinn þú telur henta þér betur, hvora leiðina þig langar að fara.  Þetta er í raun mjög einfalt!  Veldu! 

Í öðru horninu eru þeir sem þú ert kær í dag, í hinu þeir sem þú ert kær alltaf!

Svo er það sá sem leggur þig nánast í einelti, -þolinmóðasti, þrautseigasti, og einbeittasti vonbiðill sem til er.  Hann mun taka hverju því sem þú réttir að honum, mættur við hlið þér ef þú hrasar- tendrar elda sem enginn veit hvort eða hvenær brenna út!  Þú ert búin að reyna að hafna honum með öllum hugsanlegum rökum, hunsa hann og niðurlægja á allan hátt- en án árangurs. 

Kannski er tími kominn til að sýna honum að hann eigi ekki sjéns, þú sért komin í annað samband.

Hringdu!   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband