Föstudagur, 22.2.2008
Húsið.
Húsið er alveg sérstaklega gott og vinalegt hús. Nú er húsið að skipta um eiganda, og ætlar að fara að huga að andlitsupplyftingu. Húsið er alveg æst í að fá einhvern til að búa í sér, og bendir á frábært útsýni af efri hæðinni sér til stuðnings. Þá sé hægt að velja hvaða horn sem er og hræra í því að vild, svo það henti misfjölmennri fjölskyldu. Þetta hús vill fá mig, og að sjálfsögðu tók ég boðinu enda kurteis með afbrigðum. Ljóst er þó að þrjár álmur verða á efri hæðinni, ég get þá alltaf flutt á milli,
Athugasemdir
Hvað er það statt,húsið.Vonandi á suðvestur horninu
Birna Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 08:43
Ekki nóg með það, heldur er þar til staðar í dag, allt sem ég þarf mest á að halda í augnablikinu- en gef mér ekki tíma í.
Björn Finnbogason, 22.2.2008 kl. 09:42
Hann Bjössi gerir allt tvöfalt og dettur líka stundum út
Birna Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 12:10
Nú væri sko gott að eiga fjölritunarvél get ég sagt ykkur:-)
Björn Finnbogason, 22.2.2008 kl. 21:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.