Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Ekki verði ráðist á V.G. Vel - Gerðarkerfið!

Nær að soga allt líf úr landsmönnum, til að halda uppi allt of þungri og svifaseinni stjórnsýslu!

Já fari þetta verktakalið allt til fjandans, en þið skulið ekki voga ykkur að hreyfa við Vegagerðinni. 

Þar situr fólk sem er búið að sitja þar, og getur ekki annað en setið þar, og hvert á það að fara ef það getur ekki lengur setið þar?

Umhverfisstofnun?  Fiskistofa?  Skipulagsstofnun? 

Fullt af allskyns stofnunum sem skera mætti niður- án þess að hrófla mikið við velferðarkerfinu!

 


mbl.is Deilt um leiðir í Karphúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver var í þessari matsnefnd?

Niðurstöður hennar verða nú metnar eftir því í mínum huga amk.  Verður nú athyglisvert að sjá hvort fyrrverandi og núverandi aðal og yfir hagfræðingar og aðrir innanbúðarmenn í Seðlabankanum teljast hæfir í dag ;-D
mbl.is Mat á umsækjendum birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Save the slaves -svona byrjaði Icesave....

Dóttir mín er að læra á létt bifhjól.  Innifalið í því er að taka æfingapróf annað slagið sem eru eins og raunverulega prófið.

HVAÐA HELVÍTIS FÍFLAGANGUR ER Í GANGI?

Ég hef aldrei nokkurn tíma séð aðra eins vitleysu.  Talandi um sparnað og niðurskurð þá mætti leggja þá stofnun niður sem sér um þessi mál.  Svik og prettir eru grunnkunnáttan sem þessir krakkar fá í gegnum þessi próf, að efast um allt og trúa engu.

hvað þetta hefur með ökuleikni þeirra að gera er mér með öllu óskiljanlegt, eða þekkingu á umferðarlögum.


mbl.is Þurfa að bíða í þrjú ár eftir réttindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhver vandræðagangur?

Frekar huggulegt að fylgjast með þvælingnum á Einari undanfarið.  Enginn hefur við það nokkrar athugasemdir að hann sé á rúntinum milli stofnana.

Engum finnst skrýtið hvað lögð er mikil áhersla á að hann fái ekkert borgað fyrir það!

Ef það er hægt að nota hann einhvers staðar, á hann að sjálfsögðu að fá greitt fyrir það eins og aðrir.


mbl.is Einar Karl tímabundið í forsætisráðuneytinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hagnast á óförum annarra?

Gaman orðið að fylgjast með þessu öllu saman.  Joly brunar um byggðir heimsins, fleygir út álitum úr flugvél í myflugumynd, og er svo farin á næsta stað.  Greinilega verið að hámarka tekjurnar eins og hægt er.

Hvort við íslendingar þurfum einhverja 5% Joly er ég ekkert viss um.  


mbl.is Eva Joly: Botninum ekki náð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig ætli hún Jóhanna kæmi út í lit?

Það gæti orðið fróðlegt að sjá!  Allavega er ekkert gagn í að hlusta á hanaW00t
mbl.is Tortryggni í samfélaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn bjargar lundanum!

Það var jú á þessum 100 atriða lista.  Þá er ríkisstjórnin búin að afgreiða hátt á 60 mál á listanum.

Stjórnin er að fara eins og köttur í kringum heitan graut, allt gert nema það sem þarf til að fólk og fyrirtæki, svo og aðrar stofnanir geti séð hver staðan virkilega er.

Hverjum er ekki skítsama um einhverjar afskriftir úr þessu?  Gjaldþrota einstaklingum og fyrirtækjum er enginn akkur í að fá afskrifaðar skuldir -án tekjuskattskylds ávinnings.  Þetta er nýjasta trompið sem verður spilað alla þessa viku og næstu. 

Frá því í febrúar hafa sennilega 25% fleiri fyrirtæki og einstaklingar komist í ráðþrota hópinn, sem á endanum verður gjaldþrota.  Á meðan hreykja þau sér af afrekum sínum Jóhanna og Steingrímur í hverri viku, og fjölmiðlar gleypa allt saman hrátt og hafa athugasemdalaust eftir þeim.

 

 


mbl.is Auðveldara verði að taka á málum skuldara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta heitir að standa í lappirnar!

Eitthvað sem Vinstri grænir og Samfylking geta bara ekki lært virðist vera!
mbl.is Samstarfið heldur í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski farinn að heyra svona illa?

Blessaður öldrunarlæknirinn, eða tekið upp eftir sjúklingum sínum að heyra bara það sem hann vill heyra eins og þekkt er í hans fagi.
mbl.is Sjálfstæðismenn ræddu við VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað varð um endurreisn bankakerfisins?

Icesave og Skjaldborgina?

Endalaust heldur leikritagerðin áfram til að beina athyglinni frá getuleysi stjórnvalda í landinu til að koma fólki og fyrirtækjum til hjálpar.

Blaðrið í Steingrími og Jóhönnu um að búið sé að uppfylla helminginn af því sem til stóð á 100 dögum og hreykja sér af því er ótrúleg snilld alveg.

Þetta er svona svipað og ég segðist ætla til Danmerkur á morgun og þættist hálfnaður þegar ég vaknaði í fyrramálið!


mbl.is Verið að leyna FME staðreyndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband