Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Taka af skarið!

Ekki eins og við mjálmandi utan í bretum.  Breska sendiherrann heim og selja nóg af skuldum Baugs í Bretlandi til FIH, okkar banka í Danmörku svo hægt verði að ganga að eignunum, loka þeim svo þar til annað verður ákveðið.  Verður nú gaman fyrir bretana að ganga um Oxford stræti eftir það ævintýri.  Mér er til efs að við töpum meir en öllu hvort sem er.
mbl.is Sendiherra Þýskalands í Rúanda vísað úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessuð kellingin!

Hún ætlar nú að fara að leyfa öðrum að menga í boði okkar.  Meiri dúllan.  Hélt nú satt að segja að hún væri týnd, hefði orðið eftir í útlöndum einhvers staðar.  Heyrði svo að vísu af henni um daginn: konan sem drap ísbjörninn var með mér í flugvélinni!  Flott eftirmæli um umhverfisráðherra hahahaahaa
mbl.is Ísland selur mengunarkvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glerhúsið!

Undir hvaða hatti lá 30-40% hlutafjár í bönkunum?  Jú hatti ASÍ.  Lífeyrissjóðir landsmanna áttu allir hlut að máli beint með þeim hætti.  Að ætla sér að víkjast undan því með að skera aðra er nú aumt svo ekki sé meira sagt. 

Naflaskoðunin ætti nú að byrja hjá forystumönnum í verkalýðshreyfingunni sem eru búnir að borða ókeypis lax í fleiri ár á kostnað okkar hinna, eftir boðsferðir bankanna, og sjóða innan bankanna.

Af hverju eru forystumenn verkalýðsins með tvöföld ráðherralaun?

 


mbl.is Vegið ómaklega að ráðherrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldur í sinu

Er yfirleitt kveiktur fyrir slysni.  Eldur á senu er til að fanga athygli.  Spurning með þennan, flokkast kannski undir sjálfsíkveikju!
mbl.is Áframsendi gagnrýni á Valgerði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendum þá hringinn!

Við eigum að setja upp móttöku fyrir erlendar sendinefndir á Ísafirði og Raufarhöfn.  Þá fá þeir eitthvað út úr ferðinni, og við erum svo sem ekki í nokkru standi til að velja túristana þessa dagana. 
mbl.is Fulltrúar breskra sveitarfélaga á leið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verjum ætið í landhelginni!

Djúpsprengjur á línuna!  Held þessi makríll geti þá bara étið heima hjá sér, nema skotar ætli að greiða fyrir fæði;-D  Ekki höfum við efni á að brauðfæða fisk "annarra"!
mbl.is Saka Íslendinga um ofveiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eina sem okkur vantar!

Það eina sem okkur vantar núna er svona stjórnarkreppa.  Þá værum við komin með allar tegundir.  Við íslendingar getum nú ekki verið eftirbátar annarra, enda lítið annað að gera í stöðunni en að eyða tímanum í kosningabaráttu.  Svo kjósum við eins og við eigum lífið að leysa í tvö-þrjú ár.  Prentum kjörseðla og peningaseðla til skiptis -bjútifúl!!!
mbl.is Mugabe: Stefnt að því að mynda nýja stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er hýr, og ég er rjóð....

Því Jón er kominn heim! 

Ingibjörg Sólrún átti nú aldeilis tromp upp i erminni framan af hremmingum okkar. Stúkudrenginn Jón Sigurðsson, heimkominn fyrrum bankastjóra frá Finnlandi, stjórnarformann Fjármálaeftirlitsins, varaformann stjórnar Seðlabankans, algerlega vammlaus að hennar mati og flottur til að taka við Seðlabankanum.

Lítið hefur hinsvegar til hans sést eftir að Fjármálaeftirlitið blandaðist svona rækilega inn í málin.  Fréttamenn virðast heldur ekki hafa nokkurn áhuga á að vita neitt um Jón, eða finna hann kannski ekki.

Kannski er hann í pólitískri endurhæfingu og birtist okkur svo sem landsfaðirinn Jón, svona eins og Ólafur Ragnar forðum daga.

En hvar er Jón?


Hvílík uppgötvun!

Vá hvað þetta fólk fylgist vel með hérna á landinu.  Eða kannski var það flutt á milli húsa í burðarrúmi síðast þegar þetta var stundað hvað mest.  Ætla að biðja þessa snillinga að láta allt vera sem þeir vita ekki hvað er.  SKAMM!W00t

Forsendur, spár og fleiri leikir sem hafa verið í gangi undanfarin ár eru off.  Nú er lífið að veði hjá mörgum og við þurfum ekkert á útreikningum á því að halda hvenær fólk telst dautt!

Sú staðreynd að þú sért ekki dauður er engin sönnun þess að þú sért lifandi!  Nóg í dag!


mbl.is Makaskipti geta haft áhrif á verðmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Formaður FME

Er með áratuga reynslu af alþjóðlegum bankaviðskiptum.  Er virkilega verið að halda honum eitthvað til hlés til að geta sett hann í starf næsta Seðlabankastjóra?  Ég bara spyr?  Jóni Sigurðsyni hefði verið í lófa lagið og á hann hefði verið hlustað hefði hann sagt eitthvað, hreint bara eitthvað um þessi mál.

Allt kom fyrir ekki og staðan sem við erum í afleiðing þessa skeytingarleysis FME og Seðlabankans, og eigendur bankanna keyrðu yfir á rauðu árið um kring, með þessa aðila hinum megin við götuna.


mbl.is FME: Upplýsti ekki ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband