Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Segir allt sem segja þarf!

Um stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík.  Spurning hvort félagar vilji ekki fá nýja stjórn sem er viðstödd þær hremmingar sem nú ganga yfir.  Finna svo sandkassa fyrir gömlu stjórnina.
mbl.is Vilja kosningar í upphafi nýs árs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drullusokkur

Veit ekki hvort það er þarna inni?  Kannski ekki nógu frumlegt!
mbl.is Aðólf, Júní, Maríkó og Skugga samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í takt við Gift!

Pappírstígrisdýr að brenna upp.  Subbugangurinn í Framsóknarflokknum undanfarna áratugi kemur skýrast fram í örlögum þessa félags almennings sem skipti við Samvinnuhreyfinguna hér áður fyrr.  Þegar allir framsóknargæðingarnir sem vildu og þurftu voru búnir að nota peninga þess, var samt ekki hægt að deila því út til félagsmanna. 

Flokksþing í janúar þvílíkt grín!  Þar sem tveir flokksmenn koma saman er þá væntanlega verið að tala um stóran hlut.


mbl.is Formannsslagur í Framsókn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðurpóllinn á undan okkur?

Er algjörlega búinn að snúast í hring gagnvart IMF og Evrópusambandinu.  Að sjálfsögðu eiga íslendingar að láta IMF taka landið yfir og sækja um aðild að ESB.  Þeir eiga líka að sækja um flýtimeðferð.

Annars segja þau lönd sem runnið hafa í gegn hjá IMF á meðan Ísland er á ís, allt sem segja þarf um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. 

Vonandi verður þessi kreppa til þess að almenningur fer að gera þær kröfur til stjórnmálamanna, að þeir stjórni regluverkinu en ekki öfugt.

Frelsi er ekkert spennandi þegar því fylgir ekkert val.

Vonandi er hér verið að tala um næsta miðvikudag, það veit þó enginn.

Vil að endingu benda fólki á að minnka heiminn í viðráðanlega stærð fyrir sig og treysta ekki á neitt nema sig sjálft.  Staðan er einfaldlega þannig að það sem þú ert, og hefur yfir að ráða, er það eina sem hægt er að treysta á í augnablikinu.


mbl.is Lánsumsókn Íslands hjá IMF afgreidd á miðvikudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bognar gúrkur!

Mikið verður lífið allt einfaldara þegar Ingibjörg verður búin að koma okkur í ESB.  Velti hinsvegar fyrir mér breyttu notagildinu að öðru leyti.  Kannski verða konur í auknum mæli að fara að notast við menn ef ekki er lengur hægt að stóla á grænmetismarkaðina.  Svo er líka spurningin hvernig þessar elskur horfa á okkur menn yfirleitt.  Erum við kannski einnota grænmeti í þeirra augum?  Myndi skýra margt........
mbl.is Aflétta banni við bognum gúrkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En nýja "sendiherrann"

Hugmyndaauðginni hjá utanríkisráðherra nr1., eru greinilega takmörk sett.  Sker niður þar sem hún kemst upp með, og bætir svo heilum sendiherra við svona til skrauts, samstarfskonu sinni til margra ára!  Annars er þetta svona eins og taktíkin hjá Gordon Brown, þegar hann slátraði íslenska vegabréfinu.  Beina athyglinni frá sjálfri sér á kostnað minnimáttar.  Við eigum nefnilega ennþá svona minnimáttar þó smá séum orðin.
mbl.is Skiljanlegt að dregið sé úr þróunarframlögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleymum Bónus!

Hættum að fjármagna vitleysuna!  Nú á að koma aftur og strauja okkur einn ganginn enn!  Nei takk.  Ekki ætla ég að taka þátt í að fjármagna kaup Jóns Ásgeirs á 365 eða öðrum riðandi fyrirtækjum.
mbl.is Fallið verði frá kröfu um upplýsingagjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saving Iceland

Hvar eru þau nú?

Kominn sá tími að íslendingar geri sér grein fyrir því að það er engin auðveld leið út úr þessum vanda.

Evrópusambandið er ekki raunhæfur kostur, þar sem betra er að fólk sé á viðræðuhæfu plani ef það ætlar að búa saman.

Við eigum að segja upp samningnum um EES.  Segja okkur úr NATÓ.  Leggja utanríkisþjónustuna undir markaðsskrifstofur fiskiðnaðar og ferðaþjónustu.

Og síðast en ekki síst taka upp dollarann sem greiðslumiðil.

Hvort sem við lokum Íslandi fyrst og keyrum upp atvinnustigið innanlands, og förum svo í dollarann eða gerum það strax, skiptir kannski ekki öllu máli.

VIÐ ERUM ÖLL EIGNALAUS HÉR Á LANDI HVORT EÐ ER.

Því fyrr sem við áttum okkur á því, því fyrr getum við farið að takast á við næsta verkefni, sem er að lifa þetta af, og búa um okkur í landinu á ný, þeir sem þess óska og þeir sem þurfa og verða. 

Nú sem fyrr endar þetta alltaf þannig að þeir sterkustu lifa af og hinir hæfu nýta þau tækifæri sem fyrir hendi eru hverju sinni.

 

 


mbl.is Ísland stendur frammi fyrir gjaldþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðan við getum ekki hjálpað okkur sjálfum!,

Getum við að minnsta kosti hjálpað öðrum.  Nú eigum við að taka fram Elton John sólgleraugun og senda eins og tíu gáma af fiski til Þýskalands á uppboð og senda andvirðið til Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna.  Þetta ættu að vera um ein milljón dollara, kannski meira.  Úthluta þeim skipum sem taka þátt tvö tonn fyrir eitt gefið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband