Mánudagur, 7.7.2008
And now I´m back -from......
Haldið þið ekki að ég hafi fundið holu í stundaskránni til að hvílast í næstum heilan sólarhring. Var að vísu fluttur hreppaflutningum til baka ásamt annarri manneskju, en aðeins um stund svo ég náði nú mestu sólinni í dag.
Æðislegt að heimsækja fornar slóðir svo í kvöld. Hitti þar fyrir mann sem ég hafði ekki séð síðan 2005, og við gátum borið saman bækur okkar um liðna tíma.
Las svo yfir stjörnuspá dagsins er ég kom heim- maginn er enn að ná sér eftir hláturskrampann og ánægjuna miklu með þennan spáhöfund, þetta er greinilega mikill vitringur þegar hann vill við hafa og ég er sáttur við skrifin:-)
Athugasemdir
Þetta blogg get ég ómögulega skilið, en til lukku engu að síður.. eee held ég
Guðrún B. (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 10:40
Held að það hljóti að vera ljósu lokkarnir sem þvælast svona fyrir þér. Annars ertu frekar skörp
Björn Finnbogason, 9.7.2008 kl. 02:40
Guðrún B. (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 17:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.