Þriðjudagur, 5.2.2008
Framtíðin breytist án fyrirvara- stundum.
Frábært þegar maður er að skipuleggja sig jafnvel nokkra daga fram í tímann, hve snöggt getur orðið um skipulagið og það hreinlega horfið á hálftíma með manni og mús. Maður sorterar fólk, atburði, verkefni o.s.frv., eftir mikilvægi að eigin áliti, fer svo til tannlæknis og hann sker þetta plan í strimla á svona eins og hálftíma og rukkar mann svo þvílíkt fyrir!!!
Nú sit ég dofinn frá hálsi upp í heila, allur bólginn og er að endurskipuleggja daginn og vikuna þar sem allt átti að gerast, vikuna þar sem allt verður að gerast, hvort sem ég geri hlutina eða ekki. Þetta eru dagarnir þar sem væri gott að geta hringt sig inn veikan
Verst að gemsinn minn er alltaf á tali þegar ég hringi í hann
Athugasemdir
Þú ert bara flottastur
Birna Dúadóttir, 5.2.2008 kl. 20:41
Helgi hringdi í kvöld,svo gaman að heyra hvað honum líður vel þarna úti.Hlakka til að fá hann heim
Birna Dúadóttir, 5.2.2008 kl. 23:22
Og þú sem sagt alltaf í símanum
Jónína Dúadóttir, 6.2.2008 kl. 08:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.