Þriðjudagur, 22.1.2008
Glæsilegri kvenkostir fást ekki
Var að rifja upp í kvöld frétt frá því í síðustu viku um hvernig leikarar í USA héldu aftur af drengjum sem sóttust eftir dætrum þeirra. Þetta kom upp í hugann þegar dætur mínar tvær voru inni í stofu og ég var með þá þriðju í símanum að þylja upp einkunnir sínar. Þá fjórðu er ég búinn að missa út úr höndunum í fangið á Hafnfirðingi, en hann má þó eiga það að hann er þokkalegasta eintak af slíkum að vera, og hún Sóley Birta sem hann á aðild að er alveg gjörsamlega úrvalsupphaf að afaseríu minni sem ég er nú farinn að huga að. Hvað hinar varðar er staðan þannig að ég á ýmis tromp á hendi sem ég get beitt ef mér finnst brýn þörf á. Annars er bara svo mikið vit í kollinum á þeim(hvaðan ætli það sé), að engin ástæða er fyrir mig að efast neitt sértaklega um þeirra val, og engri þeirra myndi ég vilja breyta á nokkurn hinn minnsta hátt-þá meina ég ENGAN. Ekki ætla ég að fara að setja út á að mamma þeirra sé ekki búin kenna þeim á þvottavél, eða benda þeim á að fötin detti ekki úr henni straujuð inn í skáp, og það sé betra að hafa vatn á straujárninu og kveikt á eldavélinni.
Hitt er svo aftur annað mál að ÉG kann á þvottavél, uppþvottavél, saumavél, og meira að segja hakkavél, og get notað þær.(bara svona smá ónauðsynlegar upplýsingar fyrir þá er kynnu að vera að velta því fyrir sér)
Athugasemdir
Góður
Jónína Dúadóttir, 22.1.2008 kl. 05:58
Klárlega hafa þær fengið allt besta genaflöktið frá pabba sínum,þú kennir þeim bara rest.Æts geturðu saumað í jakkann minn
Birna Dúadóttir, 22.1.2008 kl. 07:38
Með annarri hendinni- ekki málið
Björn Finnbogason, 22.1.2008 kl. 09:00
er þá ekki málið að þú kennir þeim á þvottavélina , straujárið og eldavélina
Margrét M, 22.1.2008 kl. 15:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.