Föstudagur, 28.12.2007
Erum að flokka pappír- vinsamlega reynið síðar
Kom upp í hugann er ég las fréttina. Erfiðar aðstæður og hvert er hringt jú í næstu björgunarsveit.
Minni bara á flugeldasöluna, auðveldustu, einföldustu og bestu leiðina til að viðhalda björgunarsveitunum sem við vitum aldrei hvenær við gætum þurft á að halda.
Þyrlusveit LHG er líka löngu búin að sýna hvað í henni býr, og ömurlegt að horfa til þess hvernig alltaf er verið að hringla með þessa lækna í kringum hana. Það á bara að flytja allan pakkann til Keflavíkurflugvallar, þar gætu læknar haft aðstöðu á gamla sjúkrahúsinu til að sinna sérverkefnum í hjáverkum, á milli þess sem þeir hoppuðu landshorna á milli til að bjarga mannslífum með þyrlunum okkar!
Hífður upp úr vök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.