Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Ef ríkisstjórnin stæði sig...

Svona vel í að skúra út í Fjármálaeftirlitinu, Seðlabankanum, og Fjármálaeftirlitinu!  Þá ætti maður nú kannski von í brjósti um að hlutirnir væru að breytast eitthvað, en nei allir komnir í sama pakkann lækka launin sín, lækka eftirlaunin sín.  Ekki við miklu að búast af fólki sem hefur ekki meira hugmyndaflug en þetta.  Væri nær fyrir ríkisstjórnina að svipta þingmenn launum í þrjá mánuði vegna vanþekkingar, vanhæfni, og almennri vankunnáttu á öllum sviðum.
mbl.is Frumvarp um launalækkun kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hátt glymur í tómri tunnu!

Fjandi er þetta orðið þreytt ástand þegar fólk er farið að kroppa augun hvert úr öðru. 

Hverjir notuðu peningalegar eignir bankanna, lífeyrissjóðanna, og margra annarra, sjálfum sér til framdráttar?

Hverjir komust upp með að spinna upp gengi hlutabréfa til að hagnast á því? 

Hverjir keyptu svo eignir erlendis á lánum sem fengu stimpilinn "Made in Iceland"?

Í guðanna bænum byrjum þar amk.


mbl.is Þeir sem töpuðu fái skattaafslátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk er fífl!

Hvað með alla stjórnendur bankanna?  Hvað með eigendur þeirra?  þetta lið situr allt í vinnunni og skemmtir sér á óskertum launum við að lesa kröfugerðir almennings um að Davíð fari eða veri, norður eða niður.  Forstjórar og stjórnarformenn gömlu bankanna föndra við það í útlöndum að kaupa útibúin hingað og þangað fyrir ekki neitt, en ekki nokkur maður mælir gegn því.

Almenningur býsnast yfir 1750þús. króna mánaðarlaunum nýju bankastjóranna en hefur ekki skoðun á hinum hundruðunum sem eru enn að vinna á 5-10milljónum á mánuði.

Nú eru verkalýðsforingjar að HUGSA um að lækka launin sín NIÐUR í ráðherralaun á mánuði!!!!

Það sé sennilega betra í ljósi aðstæðna!

Hitt er svo annað mál að það á að reka Davíð fyrir hótanir hans um afleiðingar þess að hann verði látinn fara.  Það á enginn neitt á Íslandi í dag, hvorki hann né aðrir.


mbl.is Miserfitt að hætta í pólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mín útgáfa!

1.  Ríkið viðurkennir vanmátt sinn gagnvart ástandinu, og að það hefur enga stjórn á peningamálum landsins.

2.  Ríkið fer að trúa að sérstök eignaumsýslufélög sem hirða eiga fyrirtæki fyrir ekki neitt geti gert ástandið gott að nýju.

3.Ríkið felur líf landsmanna í hendur óháðs umboðsmanns í hverjum banka sem samkvæmt skilningi mínum á að vernda hag fólks.

4.  Valdar verði leiðir sem flæki málin sem mest.

5.  Ríkið mun hafa frumkvæði að því að eigendur gamalla fyrirtækja geti skriðið fyrir sjóð til að betla hlutafé, í stað þess sem gufaði upp!

6.  Ríkið hvetur til þess að ekki verði lánað gömlum glæpamönnum og þess gætt að finna ný fífl til að plata til samfélagslegrar ábyrgðar í stað þeirra sem töpuðu aleigunni.

7.  Ríkið vill að útlendingar skaðist ekki eða sem minnst, á meðan íslendingar lepji dauðann úr skel.  Fínt væri að útlendingarnir eignuðust allan kvótann með því að eignast bankana.

8. Ríkið hyggst leyfa fyrirtækjum að reka sig í erlendum gjaldeyri.  Hann á að koma af himnum ofan!

9.  Ríkið mun leyfa lifeyrissjóðunum að eiga íbúðir til langs tíma!  Annars hvað?

10.  Áhersla verður lögð á minnkandi vélvæðingu með útflutningi á vélum og tækjum svo við höfum not fyrir fleiri hendur.

11.  Ríkið ætlar að beita sér fyrir endurskoðun hlutafélagalaga og skattalaga svo við sem eftir erum verðum örugglega aldrei aflögufær á ný.

12.  Ríkið mun í samvinnu við vitleysingana á vinnumarkaðnum, ASÍ og SA koma málum svo fyrir að leita þurfi nýrra leiða við að svindla á gjaldeyrisviðskiptum.

 

En hvar eru þeir fjármunir sem Ríkið ætlaði að setja í bankana? Það skeður ekki neitt fyrr en bankarnir hafa burði til að vinsa úr þá sem eiga að lifa frá hinum sem verða skildir eftir.  Ekkert, nákvæmlega ekkert í þessum tillögum gefur nokkur fyrirheit um það hvenær eða hvort af því verði.  Þangað til blæðir landinu áfram út.  Kannski er það tilgangurinn, ég er farinn að  hallast að því. 

 

 


mbl.is Bjarga á fyrirtækjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju!

Fyrsta naglfasta ákvörðunin sem tekin er eftir hrun Íslands.  Óska Kjararáði til hamingju með að láta ekki beygja sig til brota.

 


mbl.is Kjararáð getur ekki lækkað launin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri nú til að kóróna vitleysuna!

Ef Kjararáð kemst að einhverri annarri niðurstöðu nú, eða fer eftir tilmælum frá þeim sem skipuðu það á sínum tíma, gagngert til þess að koma í veg fyrir allar svona æfingar stjórnmálamanna.  Það verður þá að leggja ráðið niður ef það á ekki að starfa sjálfstætt.
mbl.is Niðurstaða kjararáðs kynnt ríkisstjórninni á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband