Saksóknari byrjar á toppnum!

Næst verða starfsmenn sveitarfélaganna fyrir honum og svo almenningur sem vogaði sér -ekki bara að kaupa, heldur var svo ófvífið að selja bréfin sín meðan þau voru einhvers virði.

Hinir raunverulegu "eigendur" skuldafangelsins Íslands flatmaga á meðan á sólarströnd eða spássera um götur Reykjavíkur.

Svo er hægt að setja hundruði milljóna í þýðingar á ESB bulli, en  við höfum ekki efni á almennilegum sérfræðingum til að aðstoða okkur í Icesave!

Fólki virðist líka þetta bærilega því ríkisstjórnin heldur meirihluta samkvæmt síðustu könnunum. 


mbl.is Hlutabréfasala ráðuneytisstjóra rannsökuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri hefur legið undir grun um innherjaviðskipti frá því allt hrundi. Það er því nauðsynlegt að rannsaka það mál, á hvorn veginn sem það fer. Það gleymist oft þegar verið er að ræða um rannsókn á hruninu, að það getur tekið langann tíma að rekja slóðir að einhverju sem virkilega er ólöglegt eða vekur grun um slíkt. Nú er verið að tala um að líkur séu á að Kaupþing hafi stundað markaðsmisnotkunn frá upphafi og Bankinn hafi jafnvel verið keytur með einhverri miður góðri aðferð. Er þá ekki farið að hitna verulega undir útrásarfólkinu.

Varðandi þýðingar á ESB skjölum eru það mjög nauðsynlegar þegar horft er til þeirra samningaviðræðna sem framundan eru. Fram þarf að fara viðamikil kynning á málinu, hvað sambandið stendur fyrir og hvað hefur samist um, áður en við göngum þar formlega inn.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 17.10.2009 kl. 22:57

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Til rannsóknar er umdeild sala Baldurs á hlut sínum í Landsbankanum eftir að hafa setið fund með Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, Björgvini G. Sigurðssyni þá verandi viðskiptaráðherra og embættismönnum um Icesave- og Landsbankamál 2. september 2008, korteri fyrir hrun. Hvað er verið að blanda Samfylkingar manninum Björgvini sem er í ríkisstjórn við þetta, samfylkingin hún vissi ekki neitt allir saklausir svo trúa sumir, ekki ég.

Rauða Ljónið, 17.10.2009 kl. 23:13

3 Smámynd: Magnús Jónsson

Hólmfríður:Þýðing á ESB skjölum er nauðsynleg, vegna ofríkis Samfylkingarinnar, "ekki nauðsynleg áður en við göngum þar inn", því þjóðin þarf að taka ákvörðun um það hvort við viljum ganga þar inn, sem er eitthvað sem virðist ekki rúmast innan skoðana Samfylkingarinnar.

Magnús Jónsson, 17.10.2009 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband