Þið hljótið að vera að grínast!

Þið hljótið að vera að grínast í þjóðinni með þessum aðgerðum ykkar.  Ekki slæmt að fá svona púður í kosningabaráttuna.  Allt sem þið gerið lítur út einsog að þið eigið ekki eftir að eiga afturkvæmt í stjórn næstu tíu árin eða svo.  

Og held ég að nær væri að deila þessum fjármunum niður á Grunnskólana í landinu.  Helvítis fíflagangur að fólk sem skvettir málningu á vegg fái listamannalaun, eða tekst að fjölrita A4


mbl.is Leggur til breytingar á listamannalaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karen María Jónsdóttir

Það gleymist í umræðunni að geta þess að með fjölgun listamannalauna er einnig verið að fjárfesta í útflutningi í einum af okkar megnugustu atvinnuvegum.

Á meðan losunarkvótar eru að fyllast, fiskurinn í sjónum er að bregðast okkur og bankakerfið er hrunið þá eru það hugvit listamanna sem stendur eftir sem ein okkar sterkasta auðlind.

Bókmenntir, myndlist, tónlist, leiklist og hönnun (sem nú er verið að stofna nýjan jóð fyrir) er vara sem er vinsæl erlendis og er að færa þjóðinni gjaldeyristekjur á erfiðum tímum.

En það er ekki það eina. Mikilvægi lista þegar kemur að því að treysta samskipti milli þjóða og hlutdeild listarinnar í uppbyggingu viðskiptatenglsa eru einnig þekkt og viðurkennt fyrirbæri. 

Listamannalaun eru öflug leið fyrir ríkið til þess að kaupa ákveðna þjónustu sem tryggir að virkni ofangreindra þátta verði sem mest.

Bendi á orð Þorgerðar Katrínar á Kvikmyndaverðlaununum Eddunni núna fyrir jól þar sem hún sagði að þjóðin hefði sjaldan þurft eins mikið á listamönnunum okkar að halda eins og núna við endurreisn okkar út á við og til að byggja sjálfstraust okkar inn á við.

Nýr menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir er að byggja undir þjóðina á framsækinn og frumlegan hátt. Hún er áð nýta hér auðlind sem áður hefur verið vannýtt, auðlind sem á sama tíma er óþrjótandi. 

Karen María, danslistamaður

Karen María Jónsdóttir, 7.3.2009 kl. 00:14

2 Smámynd: Björn Finnbogason

Ég las nú yfir þessa listamannalauna lista um daginn.  Annað eins samansafn af "listamönnum" hef ég ekki séð!

Björn Finnbogason, 7.3.2009 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband