Fimmtudagur, 12. febrúar 2009
Steingrímur!
Áttu ekki hönk upp í bakið á vini þínum hinum sænska Wallenberg, eftir að þú keyptir seiðaeldisstöðina hans sem kynbótastöð árið 1991 á 157milljónir króna síðast þegar þú varst ráðherra? Geturðu ekki fengið hann til að koma og redda þessu fyrir okkur?
Silfurlax hf., manstu! Með Steingrími "heilaga nú til dags" Hermannssyni forsætisráðherra þáverandi! Alveg án þess að segja nokkrum frá því! Manstu?
Skiptir bara akkúrat engu máli í dag! Í dag skiptir máli að koma þjóðinni í gang aftur. Það gerist ekki með einhverjum söguskýringum. Hvort 94-96-98% eru þessum eða hinum að kenna er ekki málið. Að koma hlutum í gang er málið. Það er ekki að gera sig á þinni vakt greinilega, og Jóhanna er svo busy að fylgjast með hvenær Davíð mætir í vinnuna að henni verður heldur ekkert úr verki.
Spurningin er nú sú hversu lengi Framsóknarflokkurinn er tilbúinn að verja stjórn sem er föst í bakkgír og hagsmunspoti.
Hræðilegt til að vita að við gætum þurft að bíða fram í maí eftir byrjunarreitnum:-S
Niðursveiflan meiri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bara í dag
Eldri færslur
- Nóvember 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Greinilega botnfrosið íhald, rammvilltur og týndur í fortíðinni, pólitískt náttröll, sem hefur dagað uppi á miðri leið til nútíðarinnar, datt mér í hug við lestur skrifa þinna, Björn F. !!! Guð skapaði heiminn á viku samkvæmt eldri heimildum, og þóttu hröð vinnubrögð! Núverandi ríkisstjórn hefur haft álíka tíma til að greiða úr þeim hörmungum og móðuharðindum af mannavöldum sem 18 stjórnarseta og valdatíð bláu handarinnar hefur leitt yfir þjóðina með raunveruleika fyrtu aðgerðarleysi og hagsmunapoti. Um forgangsröðun mála þar á bæ, má nefna að þegar þig kom saman eftir síðasta þinghlé og allt efnahags- og atvinnulífið var í rúst, þá var fyrsta mál á dagskrá hvort Sigurður Kári ætti að fá að kaupa sér áfengi í næstu matvörubúð!!! Þetta er slík endaleysa, við neyðaraðstæður þjóðar, að það slær öll met í pólitískri blindu og mati á raunveruleika, eða er þetta kannski bara skortur á skynsemi. Hvað einhver sagði eða gerði 1991 er einfaldlega ekki á dagskrá núna, heldur að reyna að hjálpast ÖLL, að við að greiða þannig úr því neyðarástandi sem hér ríkir, og koma þjóðfélaginu í starfhæft ástand. Þar þurfa menn að hjálpast að, en ekki ekki vera með heimskulegt skítkast og trúðslæti á alþingi til að vekja athygli á sér fyrir komandi prófkjör, en horfa fram hjá því að þar situr fólk sem kjörið var til ð gæta hagsmuna okkar en ekki bara sín og flokksins. Ég get vel skilið að Íhaldinu svíði það að Solla tók í hnakkadrambið á Geir og hans fólki og henti því í heilu lagi út úr Stjórnarráðinu, en við verðum samt að spara fúkyrðin og hjálpast að hvar í flokki sem við stöndum, við verðum!! Það er ekki lögmál að það sé sjálfstæðismaður í ráðuneytum forsætis- og fjármála. Það boðar ekki heimsendi þó svo sé ekki, bara breytt vinubrögð!!
Stefán Lárus Pálsson (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 16:41
Það má vel vera að hugmyndafræði mín sé gamaldags, og íhalds er hún mikið rétt. Að halda því fram hinsvegar að ég sjái ekki vitleysur sjálfstæðismanna, eða vitleysinga í röðum Sjálfstæðisflokksins læt ég öðrum um að dæma eftir lestur þess sem ég hef skrifað hér undanfarið ár eða svo.
Þingmenn lentu þá semsagt í vínsmökkun þarna fyrsta daginn eftir þinghlé! Rosalega hefur þá verið vel veitt, því enginn þeirra hefur gert nokkurn hlut af viti síðan! ENGINN!
Ingibjörg Sólrún vissi held ég alveg hvað það þýddi að slíta síðasta stjórnarsamstarfi, en réði bara ekki við flokksbrotin sín sem hafa ítrekað traðkað á henni, þegar hún hefur brugðið sér frá.
En mikið rosalega er minnið stutt hjá fólki, það sannast nú á trúðsummælunum, veit ekki betur en að VG til dæmis hafi hagað sér eins og bjánar og geri að hluta til enn. Framsóknarfléttan í stjórnarmyndunarviðræðunum sýndi svo ekki var um villst, að margir voru tilbúnir að ganga ansi langt til að komast til valda fyrir kosningar, alveg sama hvað það kostaði.
Núverandi ríkisstjórn mun ekki gera nokkurn skapaðan hlut til bjargar. Hún getur ekki gert okkur neitt til skaða heldur, sem hún gerir ekki með aðgerðaleysi sínu. Þegar fólk áttar sig á því verður því miður allt um seinan.
Ég á samt eftir að sjá félaga Ögmund og hina kammeratana deila brauðinu jafnt af matarsendingum heimsins, eða olíunni frá rússum!
Björn Finnbogason, 12.2.2009 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.