Fimmtudagur, 26. febrúar 2009
Og hvað svo?
Átta þúsund börn eiga orðið atvinnulausa foreldra. Bílarnir eru teknir af þeim fyrir slikk -af ríkinu! Fyrirtækin farin að falla í valinn á hverjum degi og sennilega er skriðan orðin of stór til þess að við hana verði ráðið!
Súpueldhús, er það sem ég myndi fara að skipa nefnd í að setja upp.
Seðlabankinn gerir ekki neitt, og nýr seðlabankastjóri er ekki að fara að skammta súpu neins staðar!
Seðlabankafrumvarpið samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bara í dag
Eldri færslur
- Nóvember 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vil hlst ekki hugsa um það...en það þýðir ekkert að stinga hausnum í sandinn eins og strúturinn og láta sem ekkert sé..
TARA, 26.2.2009 kl. 19:17
Það er eingöngu vegna verka seðlabankans að krónan er að styrkjast núna !
Hinsvegar er ríkisstjórnin máttlaus og ekki mun ég kjósa Samfylkinguna í vor eins og ég hafði hugleitt.
En góður pistill, vekur athygli á því hvað núverandi ríkisstjórn er aðgerðarlaus en er búin að vera með þráhyggju gagnvart Davíð !
Kveðja,
Inga Lára
Inga Lára Helgadóttir, 26.2.2009 kl. 19:24
Davíð var ekki sparkað úr Seðlabankanum af því að hann væri ófær um að skammta súpu, heldur vegna þess að hann lét ofþenslu í bankakerfinu óáreitta þar til það sprakk. (Og má þá einu gilda þótt hann hafi galað einhverjar viðvaranir korteri í sprengingu.)
Enginn með fullu viti hefur haldið með því að losna við vanhæft fólk, hyrfi kreppan eins og hver önnur prumpufýla. Það var hinsvegar nauðsynlegt að losna við spillt fólk og valdasjúkt, til þess að skapa möguleika á því að takast á við kreppuna. Að vísu er það ekki nóg, við þurfum að breyta kerfinu sjálfu þannig að aldrei framar hafi fáar manneskjur mikil völd, en nú er allavega kominn einhver grundvöllur til að vinna.
Ég vorkenni engum þótt hann þurfi að borða hádegismatinn í almenningsmötuneyti. Það yrði hinsvegar skelfilegt ef við reyndum að komast hjá því með því að einkavæða auðlindir okkar og selja ríkisfyrirtæki úr landi.
Og hvað svo? Og svo bara fjandinn hafi það viðurkennum við fátækt okkar og tökumst á við hana. Ég elda fínar súpur og býð mig hér með fram til að elda súpu, pottrétti og annan einfaldan mat, 2 daga í viku frá 10-13, í þrjá mánuði. Ég er tilbúin til að gera þetta endurgjaldslaust ef einhver annar útvegar aðstöðu og hráefni. Tími samhjálpar og hófsemi er upp runninn.
Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 19:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.