Sunnudagur, 8. febrúar 2009
EKKERT!
Ekkert er gert til að aðstoða fólk í vanda
Ekkert er gert til að koma fyrirtækjum til hjálpar
Ekkert er gert til að við getum hafið uppbyggingu á ný
Ekkert er að verða einkunnarorð stjórnvalda.
Í staðinn fyrir að berja endalaust höfðinu við steininn og bíða eftir að Seðlabankinn ungi út bankastjórum, væri nær fyrir ríkisstjórnina að hefja hér uppbyggingu frá nýjum grunni.
Það er lífsnauðsynlegt fyrir okkur að byggja upp þjóðfélagið. Til þess að það sé hægt verður að byrja alveg frá grunni.
Stjórnvöld þurfa að setja upp lánastofnun sem tryggði fyrirtækjum aðgang að lánsfé í gegnum nýju bankana þannig að um einskonar tilvísun væri að ræða sem bankarnir síðar yfirtækju eftir að búið væri að leggja þeim til fjármagn og gæti þetta verið hluti af því.
Þetta þarf að gera í vikunni og er afskaplega einfalt mál. Ef banki er tilbúinn að lána fyrirtæki er það sent með tilvísun til segjum bara Fjárfestingabanka Atvinnulífsins sem greiðir út lánið í stað bankans -fyrst um sinn. Þetta gæti þess vegna heyrt undir Byggðastofnun til að byrja með svo hægt sé að byrja strax!
Keyra í gang allar framkvæmdir sem stöðvaðar hafa verið af hálfu hins opinbera, eins og bara til dæmis tónlistarhúsið.
Hraða öllu sem hægt er að koma í gang og þarfnast ekki mikils undirbúnings og innflutnings.
Nýta öll þau tæki og vélar sem enn eru eftir í landinu, sorglega mikið af þeim farið nú þegar.
Allt sem hægt er að gera til að koma atvinnulífinu í gang verður að hafa algeran forgang.
Ef þetta verður ekki gert á næstu tveimur vikum af fullu afli, er víst að vonlítið verður fyrir okkur að það takist.
Um bloggið
Bara í dag
Eldri færslur
- Nóvember 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.