Mánudagur, 25. ágúst 2008
Líf eða leiði?
Ekkert er svo slæmt að það geti ekki orðið verra hugsaði ég er ég sat fyrir framan vin min sem var að drepa sig á drykkju, og var að velta fyrir sér hvort ástæða væri til að fara inn á Vog, hann var alveg eins að pæla í því að fara bara á göngudeildina á Landspítalanum, þar sem hann lá í eigin ælu til nokkurra daga, skjálfandi eins og hrísla, vannærður og hafði mestar áhyggjur af því að það lægi svo mikið fyrir af verkefnum að enginn tími væri til að fara í meðferð.
Þar sem ég sat og horfði á hann, sá ég lífið mitt undanfarin ár fljúga hjá og allt í einu gaus ég eins og hver og hellti mér yfir hann. Hvern andskotann hann væri að spá í að hætta að drekka!, hann hefði það svo frábært, allar aðstæður svo rosalega góðar, hann gæti bara gert svo vel og drukkið sig til dauða! Það væri meira en velkomið að kaupa auka helvítis dúfu á legsteininn hans og splæsa í hvíta möl í kring. Eitthvað meira af gullkornum flaug þarna en í lokin spurði ég hann einnar spurningar:
Viltu líf eða leiði?
Vinurinn er á Vogi!
Sagði honum líka að hann skyldi ekki voga sér að flýja í hvíldarinnlögn á Staðarfelli neitt -þangað hefði hann akkúrat ekkert að gera! Hann skyldi láta renna af sér og koma svo og mæta lífinu! Minnka heiminn niður í viðráðanlega stærð, og lifa einn dag í einu, það yrðu allir að gera hvort sem þeim líkaði betur eða verr.
Dældi svo í hann hvítum lifesavers brjóstsykurshringjum, og sendi hann inn með eina rúllu af mislitum- ef hann fengi sniðugar hugmyndir!, ásamt leiðbeiningum um notkun!
Næstu daga á eftir bjó ég að þessari reynslu og get enn nýtt mér í mínu lífi og starfi. Sannast þar enn og einu sinni: "ef allt annað bregst, farðu þá og hjálpaðu öðrum"
Um bloggið
Bara í dag
Eldri færslur
- Nóvember 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.