Ætli ungabörn séu enn klædd í bleikt og blátt?

Forgangsröðunin er greinilega í einhverju mauki þarna hjá VG.  Munum nú eftir því þegar Kolbrún Halldórsdóttir var að fjargviðrast út af klæðnaði ungabarna sl. veturTounge

Hvernig væri að við -þjóðin!- færum að krefja stjórnina skýringa a aðgerðaleysinu sem varað hefur allt árið!

Aumt þegar forystan kemst ekki upp fyrir nafla!


mbl.is Óskar skýringa frá KSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hve mörg % af 0.- duga?

Yndislegt lið sem situr og reiknar hversu mikið þeir sem eftir eru á launum eigi að greiða í skatt.

Svo verður enginn eftir til að greiða skatta, og þá verða þeir væntanlega komnir í 80%! - af engu!

Væri nú ekki nær að skattleggja inngreiðslur í lífeyrissjóðina, þrátt fyrir að það muni skerða kaupmátt stjórnenda lífeyrissjóðanna á hlutabréfum sem liggja nú hvort sem er ekkert á lausu lengur!

Fyrir svo utan það að ávöxtun þeirra margra er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir!


mbl.is Skattahækkanir hugsanlega ögn minni en ráðgert var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fá báða félaga femínista fram í dagsljósið!

Ótrúlegt hvað allskyns félögum sem dúkka upp af fáránlegustu orsökum tekst að koma sér í fjölmiðla.

Oftar en ekki eru þetta skúffuklúbbar sem dregnir eru á flot á góðviðrisdögum, og tekst að láta líta út fyrir að þetta séu helstu burðarásar síns heimshluta. 


mbl.is Femínistar segja KSÍ hafa brugðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákvarðanafælni vinstriflokkanna opinberuð!

Aumt er ástandið þegar ekki er hægt að segja já eða nei við einni styttu!

En alveg rétt, Steingrímur spilaði blak og Dagur leikur sér í utandeildafótbolta.


mbl.is Stytta reist við höfuðstöðvar KSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fæðingardagar barnanna -auka frídagar!!!

Hvað ætli þurfi þá mörg börn til að vera í fríi allt árið???

Samfylkingin er alltaf að koma á óvart!


mbl.is „Dagur fékk 160 þúsund á fund“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhænan bullar sem aldrei fyrr!

Til hamingju íslendingar með svona fínan forsætisráðherra!
mbl.is Afskriftir kalla á útboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt Ísland!

Þeir sjá það í Evropu að okkur skortir raforku og eins og 2500 blaðsíðna reglugerð á íslensku þar um.

Þeir gera sér líka grein fyrir því þar, að erlent fjármagn fer brátt að streyma inn í landið í einkarellum ef ekki verður farið að stemma stigu við lendingum á Reykjavíkurflugvelli!


mbl.is ESA vill að Ísland innleiði reglugerð sem sögð er óþörf hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta gengur sko ekki!

Hækka skattana á svona lið svo það hundskist úr landi og sé ekki að trufla jafnaðarhugsjónina sem ríkisstjórnin er að koma á í landinu.  Óþolandi að allir séu ekki í sömu súpunni!!!

Enda ekki erfitt -bara að flytja pósthólfið til Tortola eða eitthvað!


mbl.is Leikjasíða á netinu skilaði mestum hagnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningalykt af henni blessaðri orðið!

Ekki er laust við að maður finni kosningalyktina leggja af störfum forsætisráðherra undanfarna daga.  Svo er verið að ýta gæluverkefnum í gegn á sama tíma og niðurrifsstarfsemi Vinstri Grænna -nú með stuðningi félagsmálaráðherra er endanlega að kyrkja almenning í landinu.  Katrín Júlíusdóttir virðist vera að gera  sér einhverja grein fyrir stöðunni með því að gangast í samninginn við gagnaverið á Keflavíkurflugvelli, en óvíst er að það fáist samþykkt í þinginu frekar en margt annað!
mbl.is Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu lagt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband