Hvað með sakargiftir?

Væri nú ekki nær að dómsmálaráðherra fangelsaði þetta lið fyrir það sem það braut sannarlega af sér?

Þar á ég við fikt við gengi hlutabréfa sem öllum ættu að vera orðin kunn!  Þessir kjúklingar myndu svo væla sig út úr fangaklefanum með því að benda hver á annan og pakkinn væri klár!


mbl.is Eignir auðmanna verði kyrrsettar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mig langar bara til að spyrja, hvað er að hægrimönnum, í alvöru, hvar er réttlætikennd þessara manna? Hvernig hefur þetta fólk eiginlega verið alið upp? Indriði Þorláksson fyrrverandi ríkisskattstjóri vildi setja kafla um skattaskjól og undanskot frá skatti í skýrslu sem nefnd á vegum Árna Matt var að vinna að í september í fyrra, en tveir menn voru á móti því. Þegar ég var að lesa fréttina þá datt mér strax í hug að hér hefðu það verið hægrimenn sem hefðu verið á móti. Og mikið rétt, Tryggvi Þór Herbertsson frjálshyggjubrjálæðingur og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins og Sjálfstæðismaður með meiru voru á móti. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru það einkum þessir nefndarmenn sem voru andvígir því að fjallað yrði um þessi mál í skýrslunni. Þess vegna spyr ég, hvenær ætlar fólk að vakna og fatta fyrir hvað þessi flokkur stendur? Hvenær ætlar fólk að gera sér grein fyrir því að þessi flokkur snýst ekki um neitt nema völd og peninga og sérhagsmuni ákveðinna aðila. Mikill er undirlægjuhátturinn að þurfa stöðugt að kyssa vöndinn á fjögurra ára fresti. Það fer að líða að því að maður fer að kalla 30% þjóðarinnar fífl, fólk sem tendur við bakið á mönnum sem hika ekki við að svíkja þjóð sína.

Valsól (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 07:21

2 Smámynd: Björn Finnbogason

Eigum við eitthvað að ræða skipan Svavars Gestsonar í fromennsku fyrir nefnd sem á að semja um stærstu skuldir Íslandssögunnar?

Meirihluti þjóðarinnar eru fífl, að láta teyma sig um landið og miðin á Davíð Oddssyni.  Stjórnmálamenn eru algerlega sneyddir dug og ráða alls ekkert við þau verkefni sem fyrir liggja, og þora ekki að taka ákvarðanir um nokkurn skapaðan hlut.

Hér eru þrjár leiðir sem hefðu komið okkur strax í gang:

1.  Reka Davíð Oddsson, bara svo hann væri ekki fyrir.

2.  Nota danska bankann okkar FIH til að tryggja fjárstreymi inn og út úr landinu og til að veita þeim fyrirtækjum fyrirgreiðslu sem halda ætti á lífi uns efnahagsreikningar bankanna lægju fyrir.  Nota hluta láns AGS til að fjármagna það.

3.  Færa afborganir lána ár aftur í tímann þannig að fólk væri að greiða sömu upphæð af lánum í dag og fyrir ári, þar til niðurstaða fengist í þau mál. 

Flókið?  Nie ekki sérstaklega!

Björn Finnbogason, 26.2.2009 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband