Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Mun færri hópuppsagnir í nóv...

Þýðir það að íslendingar séu hættir í kreppunni? Ég bara spyrHalo   Svo eru uppsagnir ekki mesta vandamálið í dag, heldur gjaldþrotin sem eru yfirvofandi og skella á næstu daga og vikur.
mbl.is 350 manns í hópuppsögnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbólga og vextir! Á Spáni er gott að.....

Game over segi ég nú bara.  Alveg kristalklárt öllum sem vilja sjá að lausafjárskorturinn sem hrjáir atvinnulífið, er kominn til að vera samkvæmt þessu.

Hvað verðbólgan er mikil eða vextirnir eru háir skiptir alls engu, þegar um EKKERT er að ræða.  Engin lán, engin fyrirgreiðsla, ekkert!  Yfirklór stjórnvalda er aumkunarvert.  Það er verið að keyra 75% fyrirtækja í landinu í þrot.  Held það væri nær að loka landinu og einbeita sér að því að fleyta fyrirtækjum en hagfræðilegum hundakúnstum.

Hverjir eiga svo að hirða upp eignirnar? -jú fjárfestar erlendis frá!  Einmitt!  Þvílíkt hugmyndaflug hef ég ekki einu sinni til að bera, að ég geti fundið einn einasta draumóramann til að fjárfesta hér.  Hins vegar er vitað um nokkra fjárfesta innlenda sem eiga fé á beit!  Hvaðan ætli það sé? 

Lækkun gengis standi stutt!  Lækkun gengis mun falla hratt að mínu áliti.  Gengisvísitalan verður svona 300 um sinn, svo 400, svo game over og við verðum flutt í flóttamannabúðir -á suðlægari slóðum vonandi!

VIÐ RÁÐUM EKKERT VIÐ ÞETTA OG GETUM EKKERT BEÐIÐ.  Eina lausnin af viti er að loka hagkerfinu og taka svo upp dollarann í betra tómi!


mbl.is Gengislækkun stendur stutt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG hræðist, óttast og gruna margt!

En segi nú ekki frá því öllu samt.  FINNST samt fáránlegt þegar fólk er að nota stöðuna sem þjóðin er í sjálfu sér til framdráttar!
mbl.is Frumvarpið vottur um uppgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænt Ísland!

Af hverju kemst ég aftur og aftur að þeim punkti, að mig langar að loka hagkerfinu, rétta okkur af og taka svo upp dollarann?

Eftir hvern hringinn á fætur öðrum er mér að skiljast að mig langar til þess að við íslendingar séum það sem við erum, eyja í miðju Atlantshafi.  Eyja sem hefur upp á allt að bjóða til þess að vera meðal fremstu þjóða heimsins í lífvænlegu tilliti, eyja sem getur staðið sjálfstæð ein og sér.

Við íslendingar höfum orðið fyrir mesta áfalli sem við höfum nokkurn tíma orðið fyrir, og eigum nokkurn tímann eftir að verða fyrir.  Við töpuðum þjóðarstoltinu.  

Að við séum nú á leiðinni inn í Evrópusambandið sem skítur á priki, er síðasti naglinn í kistuna og ömurlegt tilhugsunar að verða skítur á priki.

Þess vegna er ég aftur kominn á þá skoðun að við eigum að loka okkur af, koma jafnvægi á atvinnustigið, fyrirtækin, og þjóðina alla, og skipta svo yfir í dollar á einni viku í sumar.

Það gæti verið svona almenn frívika í endaðan júní, og við svo tekið upp nýja mynt 4. júlí 2009.

Hvað sem hagfræðingar og aðrir labbakútar sem vit þykjast hafa á segja um þessa breytingu er eitt þó víst!, við yrðum ÍSLENDINGAR Á NÝ!

Og fyrir það eitt er ýmislegt á sig leggjandi. 


mbl.is Svipmynd: Paul Volcker og Íslandstengslin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Manst'ekki eftir mér!

Mikið líturðu vel út Jakob, nei Frímann, nei beibí:-)

Ég man eftir borgarstjóra sem bauð sætri stelpu frá Færeyjum að syngja fyrir Reykvíkinga alveg án þess að hafa samband við kóng eða prest, hvort það væri yfirleitt pláss fyrir hana!


mbl.is Mótmælir spillingu, leynd, bruðli og valdhroka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En Lífeyrissjóðirnir Gylfi?

Lífeyrissjóðir landsmanna sem heyra að mestu undir félög innan ASÍ hafa átt í flestum tilfellum fulltrúa í stjórnum þeirra fyrirtækja sem þeir fjárfesta í á grundvelli hlutafjáreignar þeirra hvers fyrir sig eða saman.  Hefur verkalýðshreyfingin ekki skipað hæfara fólk í þessar stjórnir en það að ENGINN þeirra hefur séð neitt athugavert í öll þessi ár?

Hefur svo verkaýðsforystan ekkert annað að gera en að rýna í fortíðina núna?

Er ekkert brýnna?

Svona til upplýsinga er verið að segja upp fólki í hundruðatali í hverri viku.  Þetta fólk á RÉTT á aðstoð síns stéttarfélags þegar á þarf að halda.  

En verkalýðsforystan hefur aldrei verið mikið fyrir dagleg störf.  Nefndir og ráð, laxveiði og ráðstefnuferðir um allan heim, eru finnst manni stundum helstu áhugamálin. 


mbl.is Undrandi á forseta ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finnið eina, EINA hæfa...

Finnið eina hæfa þingkonu úr hverjum stjórnmálaflokki sem væri hæf til að gegna stöðu bankastjóra einhvers bankanna! Ég skal hjálpa ykkur af stað!

Sjálfstæðisflokkur:

Framsóknarflokkur:

Samfylking:

Frjálslyndir:

Vinstri Grænir:

 Mann sivjar nú orðið af þessu auglýsingaskrumi sumra til að láta vita að viðkomandi sé ekki dauð, úr öllum æðum! Brjál-æði þar með talið.

Lausnarorðið er HÆFI!  Ekki KYN.  Enn eitt dæmið um vanHÆFNI þingmanna.


mbl.is Konur og karla í bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lesið bara ársreikninga sjóðanna!

Þarf ekki frekari vitnanna við!  Vonandi ekki búið að fjarlægja þá af netinu!  Því þar voru þeir!
mbl.is Notuðu peningamarkaðssjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi fer Kjararáð að lögum!

Algjör óþarfi að gera núverandi alþingismönnum það auðveldara fyrir að halda sætunum sínum í næstu kosningum með því að lækka launin þeirra.  Auk þess sem Kjararáði ber að fara að lögum.  Það var einmitt skipað til þess að svona geðþótta ákvarðanir væri ekki hægt að taka, til að sætta einhver sjónarmið eða þjóna hagsmunum stjórnmálamanna sem ráða ekkert við sjálfa sig stundum -oftast.
mbl.is Engin niðurstaða hjá Kjararáði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hlýtur að vera eitthvað merkilegra um að vera!

Á ísafirði en þetta!  Fjandinn hafi það.  Annars get ég sagt fra því að tíkin mín fór út í kvöld fyrir nóttina og var næstum keyrð niður af ökuníðingi hér úti á götu, viss um að það hefði orðið stórslys ef hún hefði ekki verið komin inn!
mbl.is Milljón króna afsláttur vegna útlitsgalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband