Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Air Atlanta 1, B747 fyrir forsetann.

Dugði nú ekki minna á tímabili, þegar hann flaug um heiminn með "fyrrum vinum sínum" útrásarvíkingunum svokölluðu.

Að sjá hann svo stíga sjálfumglaðan á erlenda grundu eins og páfann í Róm var hreint stórkostleg sýning.

Svo reynir þessi maður enn einu sinni að stýra athyglinni að sér en frá verkum sínum og fréttamenn gleypa allt einsog venjulega enda flestir ekki komnir til vits eða ára á þeim tíma, (sumir ekki komnir með vitið enn reyndar).

Bullukollur Íslands númer eitt!


mbl.is Ólafur Ragnar: Vildi upplýsa þjóðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur athyglisjúklingurinn úr holunni!

Þar sem hann hefur haldið sig eftir að allt sem hann hefur stutt með ferðum og fjöri undanfarin ár er hrunið!
mbl.is Skapa þarf samfélagslegan frið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tjöru og fiður á Bessastaði.

Svo þar megi ríkja ást og friður.  Blessaður grísinn er alveg búinn að týna sér í asaathyglinni.  Hefur allra stjórnmálamanna mest notið svínarísins undanfarin ár og farið um allan heim á annarra kostnað sem komið hefur í ljós að við berum svo þungann af. 

Tjarga hann og fiðra, og skilja hann svo eftir á tröppunum hjá Actavis svo þeir geti poppað hann upp í pilluáti.  Vonandi klúðrar hann málum þannig að hann verði settur af.


mbl.is Stórkostlegur misskilningur forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru þínar tillögur afdalaapinn þinn!

Þið eruð sérfræðingar í að segja öðrum til verka, hvernig væri nú að þið kæmuð einu sinni með ykkar eigin tillögur til úrbóta! 

Atkvæði greidd Vinstri Grænum eru atkvæði greidd eymd og volæði um ókomin ár! 

Fólk mun átta sig á því fyrir kosningar!

Og VG verður aldrei í ríkisstjórn því það hentar ykkur ekki -gætuð þurft að vinna nefnilega!!!


mbl.is Steingrímur J: „Dæmigert fyrir ríkisstjórn í upplausn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atli Gíslason orð og gerðir!

Heilagleikinn uppmálaður og ræður svo flautuleikara sem aðstoðarmann.  Með fyrstu þingmönnum sem "fékk sér" stuð-ningsmann á launum, og tók þannig þátt í að eyðileggja tilganginn með heimild til þingmanna að ráða aðstoðarmenn. 

Allir þingmenn sem hafa "gefið öðrum" peninga með þessum hætti hafa ekkert að gera á þingi.

Læt öðrum eftir að setja upp listann.


mbl.is Segir þingmenn VG hafa veist að lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu er honum illa við að bíða!

Ef vinstri grænir fá tíma til að stilla sér upp er Ögmundur Jónasson ekki með vinnu lengur.  Sama mun eiga við um fleiri þingmenn VG sem flokksmenn sjálfir fá hreinlega grænar bólur yfir.  Þá eru líka blikur á lofti innan Samfylkingarinnar, þar gætu þeir sem líður best með VG hoppað yfir og gert kröfu á þingsæti sem myndi styrkja VG það mikið að ekki væri stætt annað en að búa til pláss fyrir þá.  Það aftur á móti gæti gert VG kleift að fara að haga sér eins og afl í stjórnmálum, sem fróðlegt væri að fylgjast með. 
mbl.is Ögmundur: Lofar ekki góðu að bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorry Geir :-(

En það vantar allt bit í þig.  Að horfa upp á þig sitja undir bullinu í honum Sindra gerði mér ljóst að dagar þínir eru taldir.  Ég hefði sagt þessum labbakút sem hélt þarna sjálfumaðdáunarræðu að drífa sig aftur á leikskólann og klára hann, staðið upp og gengið út.  

Það verður að skipta um forystu í Sjálfstæðisflokknum hvort sem fólki líkar betur eða verr.

Núna er eins góður tími og hver annar, það getur ekkert versnað mikið frá því sem nú er. 

Þið hafið farið vitlaust í allt sem þið hafið haft á ykkar forræði frá upphafi þessa hruns.

Hreinsuðuð ekki út úr bönkunum, Fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum. Öll löggjöf sem sett hefur verið er mislukkuð í besta falli og íþyngjandi í flestum tilfellum.


mbl.is Ábyrgðarleysi að leysa upp stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ hóta skólabörnum INTRUM!

Alltaf kárnar nú gamanið hjá meirihlutanum í Reykjanesbæ.  Síðasta útspilið til tekjuöflunar er að hóta skólabörnum lögfræði-innheimtu vegna vanskila á Bókasafninu.  Ég verð að viðurkenna það að hugmyndaauðgi meirihlutans eru fá takmörk sett.  Ég hef áður í þessum mánuði farið yfir stöðuna en nú er ég búinn að fá mig alveg fullsaddan á bullinu sem rennur þarna út.

Dómsmálaráðherra er ekki fyrr búinn að vængstífa sýslumanninn á Selfossi en bæjarstjórinn í Reykjanesbæ tekur við á enn lægra plani.  Í millitíðinni kynnir viðskiptaráðherra nýja innheimtulöggjöf vegna lögmannskostnaðar sem á að taka gildi 1. feb. þegar búið er enn einu sinni að henda út öllum reikningum í innheimtuferli.  Sama var upp á teningnum í vetur þegar lög voru samþykkt sem tóku gildi um áramót.

HVERSKONAR djöfulsins vitleysingar eru þarna samankomnir?  Sennilega allir þeir sem komust ekki að á alvörulögfræðistofu og fóru því í stjórnmálin.  Nú sjá þeir fram á að þurfa hugsanlega vinnu með haustinu og vilja því ekki styggja neinn.  Mér skilst að yfir 40 þingmenn séu lögfræðimenntaðir!, what a joke!!!

AÐ SJÁLFSÖGÐU átti að láta lögin gilda frá framlagningu frumvarpanna og bæði áttu þau að koma fram strax í haust þegar ljóst var í hvað stefndi. 

BURTU MEÐ ALLT ÞETTA LIÐ


mbl.is Margt getur farið úrskeiðis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALLIR ÞINGMENN ÚT!

Enginn skal vera undanþeginn því að yfirgefa skútuna og ganga plankann.  Framkoma þeirra allra er með slíkum ólíkindum að engu máli skiptir hver þeirra er við völd. 

Úr því sem komið er skipta nokkrar vikur til eða frá engu og best að hreinsa almennilega til og byrja landnám Íslands upp á nýtt.  Allir hvort sem er gjaldþrota eða ráðþrota nema hvorutveggja sé. 

Fávitahátturinn í þingheimi er slíkur að maður fær æluna í hálsinn við að sjá þessa bjána á mynd, og hálfkafnar svo við að heyra þá tala!

Þessir labbakútar þurfi svo að sæta því að geta ekki boðið sig fram til þings í fjögur ár.  Það er held ég alveg sama hvað gert er, ekkert getur komið í veg fyrir hrun landsins, og því ekki að horfast í augu við það og byrja strax upp á nýtt.


mbl.is „Þið eruð öll rekin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband