Hin mikla aðgerðastjórn!

VG og Samfylkingar við undirleik Framsóknarflokksins er mætt að sögn Jóns Bjarnasonar.  Hún stöðvar fjárnám, nauðungaruppboð og aðfarir til að bjarga bændum og búaliði auk almúgans á mölinni.  Þessi stjórn býr víst í hugskoti Jóns og virðist vel haldin.

  Í hverju aðgerðastjórn er fólgin, virðist ekki skipta neinu máli, orðið lítur vel út og fer vel í munni Jóns.

Aðrir landsmenn, ég þar með talinn, hafa ekki orðið þessa varir.  

Þingheimur samþykkti í nóvember að þrengja heimildir lögmanna til að krydda innheimtur sínar.  Það tók þó ekki gildi fyrr en um áramót, sem þýddi einfaldlega að allir sópuðu út innheimtubréfum í gríð og erg fyrir þann tíma.  

Svo tók steininn úr í janúar þegar þingmenn samþykktu önnur lög svipaðs eðlis, og gáfu vinum sínum lögmönnum tvær vikur eða svo til að hreinsa borðin sín enn einu sinni.

Svo geta þessir afdalavitringar tjáð sig eins og þeir séu snillingar!!!  Fæ alveg hroll.


mbl.is Umbætur á fjármálakerfi brýnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband