Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Taka til?

Við hverju er annars að búast þegar haltur leiðir blindan svo sem.  En að telja sér það til tekna helst að hafa rýmt súlustaði og fellt niður 100þús króna gjöld á fasteignasala, sem einhverja allsherjartiltekt ja þá frábið ég mér þetta lið í hreingerningar heima hjá mér takk fyrir.

 Segjast svo hafa eytt í það mörgum vikum!  Ömurlegt yfirklór yfir vanhæfni.


mbl.is VG bundin - á móti Sjálfstæðisflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanda sig nú aðeins!

Stjórnvöld verða nú að haga sér aðeins betur en þetta á næstunni, þegar fleiri fyrirtæki eiga eftir að lenda í sömu sporum.

Alveg spurning hvort ekki mætti setja saman áfallateymi til að fara með boðberum vondra tíðinda á vinnustaði!


mbl.is Tilfinningaríkur fundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð hjálpi okkur!

Það þarf að byggja upp fólk ekki stjórnmál.  Andskotans orðagjálfur endalaust um akkúrat ekki neitt.  Steingríms verður minnst fyrir það að fylkja þjóðinni á leiðarenda, þaðan sem fáir munu eiga afturkvæmt.

Lesið nú gaumgæfilega þetta sem hann hafði fram að færa og þær lausnir sem þessi ríkisstjórn er með.

Lesið um þau frumvörp sem samþykkt hafa verið og þau sem bíða.

Lesið líka hér um vændisfrumvarpið, fasteignasalafrumvarpið, og fleiri dúlluverkefni VG!  Ekkert um þau?  Þessi forgangsatriði veruleikafirrts fólks sem kallar sig stjórnmálamenn.

HVar eru svo fréttamenn?  Þessir prúðuleikþættir í safnahúsinu sem haldnir eru vikulega ná engri athygli fjölmiðla og enginn virðist hafa nokkurn áhuga á að spyrja þó ekki væri nema sömu spurninganna og fyrri ríkisstjórn var spurð um!


mbl.is Sterk skilaboð frá yngra fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju!

Óska Verkalýðsfélagi Akraness til hamingju með árangurinn.  Góður formaður hugsar um sitt fólk fyrst svo aðra.  Full ástæða til að óska Vilhjálmi sérstaklega til hamingju með þetta og að hafa haldið haus í gegnum þetta ferli, félagsmönnum sínum til heilla.
mbl.is Starfsfólkið fær 13.500 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OMG!

Steingrímur að vernda síldarstofninn!!!  Að síld sé rétthærri Vestmannaeyingum hlýtur nú að vera öllum ljóst eftir þetta.  Verður fróðlegt að sjá hvernig síldinni tekst að glíma við landvinnsluna og framvirka viðskiptasamninga -og Árna Johnsen þarna í eyjum.
mbl.is Síldveiðar í Eyjum stöðvaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við stjörnur Hollywood!

Borgum líka frægðina dýru verði, rétt eins og þær!  Eini munurinn að við borguðum fyrirfram, og vissum ekki af því!

Erum á leið með að verða frægasta þjóð heims -í fávitaskap að vísu, en loksins búin að slá í gegn!


mbl.is Obama: Ekki sömu leið og Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo eru sumar jafnari en aðrar!

Glæsilegt að sjá upphafið að næsta stjórnartímabili, og sjá hve jafnréttið virkar í reynd!  Sjá hvað VG eru staðfastir í stefnumálum sínum og fylgja sannfæringu sinni og stofnskrá.

Hvet fólk til að fara og leigja sér "Félagi Napoleón" á næstu leigu meðan það er enn hægt.  Eftir kosningar er ekki víst að hún verði í boði! 


mbl.is Framboðslistar VG tilbúnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sínum augum lítur hver á silfrið!

Mér finnst nú minnistap vera farið að hrella forsætisráðherra og fyrrverandi félagsmálaráðherra.  Alveg spurning hvort ekki sé hægt að gera þær lágmarkskröfur til forsætisráðherra að viðkomandi muni svona þrjá -fjóra mánuði aftur í tímann!

Varðandi uppbyggingarstarfið, þá var ég í Reykjavík í dag og sá enga hreyfingu við tónlistarhúsið!


mbl.is Jóhanna svarar kalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins 55,8% þeirra í augnablikinu!

Sem eru þeir sem samkvæmt könnun capacent styðja stjórnarflokkana í að bera okkur síðustu metrana í iður jarðar.

Óska þeim öllum fallegra eftirmæla, en reyndin verður líklega fjöldaframleidd: grafinn á vegum ríkisins!


mbl.is Íslendingar engir hálfvitar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband