Svo er fólk sem veltir sér á hina hliðina

Á meðan heimurinn hendist hjá og veldur öllum þeim breytingum sem verða á lífi okkar á hverjum degi hvort sem okkur líkar betur eða verr.

Þetta er fólk sem lifir sínu lífi hvað sem tautar og raular, lifir daginn, lifir augnablikið.

Svo er fólk sem er svo upptekið af sjálfu sér, að það nær engu jarðsambandi, því það gefur lífinu engan gaum og heldur sig í sínum veruleika, engum raunveruleika.

Það er líka til fólk sem gefur lífinu engan sjéns, nýtur ekki þess sem það hefur upp á að bjóða af því að skipulagið gæti raskast eitthvað, og tekur enga áhættu á að lífið gæti eyðilagt fyrir því einhvern daginn, einhvern tíma á lífsleiðinni.

Svo er svona fólk eins og ég: Basketball 1 

 

 








« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Þú ert flottastur

Birna Dúadóttir, 18.3.2008 kl. 07:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband