Linkind stjórnvalda gagnvart lögmönnum!

Því í ósköpunum voru þau lög sem tóku gildi um áramót og eiga að hindra óeðlilega gjaldtöku lögmanna ekki höfð afturvirk þannig að um leið og frumvarp þess efnis var lagt fram var þýðingarlaust fyrir lögfræðistofur að þefa uppi gamla afdankaða smáreikninga og fleygja þeim í innheimtu?

Þess utan er kannski ekki skrýtið að fólk láti ekki sjá sig, í mörgum tilfellum er það að fá reikninga frá einhverjum sem það veit ekkert hver er og telur sig aldrei hafa skuldað!

Lítið dæmi:  Fyrirtæki mitt fór að fá einhverja 1.600kr. reikninga í ágúst og sept frá einhverju sem heitir IP fjarskipti, ekki hafði ég hugmynd um hvað það var.  Í byrjun desember fæ ég svo hvert innheimtubréfið á fætur öðru og þessar krónur komnar í 13-16 þúsund!-hver reikningur!!! Fór ég nú að kanna málið, innheimtufyrirtækið vissi ekki neitt svo ég hringi í IP fjarskipti og viti menn!  Jú þetta er HIVE sem sameinaðist SKO og varð svo TAL!  Eftir nokkurt þref fékk ég að greiða grunnupphæðirnar með dráttarvöxtum en ekki er því til að dreifa í flestum tilfellum.  Að vísu á enn eftir að opna númerið ;-D en það hafði bara ekki verið í notkun. 

SIRKUS GEIRA OG SOLLU!

Allt sem ríkisstjórnin hefur getað gert síðan hrunið hófst, hefur að meira eða minna leyti farið forgörðum vegna hagsmunaárekstra í einni eða annarri mynd. 

Á Alþingi sitja hvað 40+ lögfræðingar!!! Sem sennilegast vantar vinnu með haustinu, og eru nú ekki mikið að rugga þeim báti neitt.

 

 


mbl.is Hátt í 400 handtökuskipanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Leita í fréttum mbl.is

Um bloggið

Bara í dag

Höfundur

Björn Finnbogason
Björn Finnbogason

Blandar sér í umræður um hluti sem hann varðar jafnvel ekkert um.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband