"Gleðibankinn", lánar vaxtalaust öllum sem vilja!

Fór á stjórnarfund í dag og ólíkt öðrum bankastjórnum hefur stjórn Gleðibankans ekki uppi nein áform um að draga úr útlánum og heitir á sama tíma hæstu vöxtum í heimi á innlán.  Enda hafa þau aukist jafnt og þétt undanfarið ár eða svo, og frábært hvað fólk hugar vel að innistæðu sinni.  Hinir serm þurfa á láni að halda furða sig dag eftir dag og viku eftir viku á því hve auðvelt er að velta á undan sér lánum í þessum banka.  Einn stjórnarmanna er reyndar þannig að bara við að horfa á hann fer maður að brosa, og er hann opnar munninn missir maður sig hreinlega annað slagið.  Þrjú okkar urðu hreinlega að yfirgefa stjórnarherbergið um stund, til að ráða ráðum okkar- hvernig við ættum að komast í gegnum fundinn!

Ég verð hreinlega alveg að viðurkenna það að svona uppákoma hefur ekki hent mig fyrr, að þurfa að yfirgefa fundi í hláturskrampa.

Eins og sjá má leiðist mér ekki neitt, þótt á kafi sé oft á tíðum í vinnu, stressi, og verkefnum.  Ég er að vinna að því sem mig langar til, á sviði sem ég vil vera á, og brátt rennur upp sú stund að ég fer að lifa af skuldum mínum.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Uss og ég bara missi af þessu

Birna Dúadóttir, 22.6.2008 kl. 03:17

2 identicon

Til hamngju, einu markmiðinu færra að ná.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 20:21

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gangi þér vel

Jónína Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband