That´s life.....

Misjafnt hvað er lagt á fólk.  Hef verið ótrúlega heppinn í gegnum tíðina með mig og mína.  Var síðast í gær að heyra þvílíkar hörmungarsögur af fólki sem ég þekki. 

Held að aldrei sé hægt að vera of þakklátur fyrir heilsuna, sína og sinna nánustu.  Allt annað er hjóm eitt í samanburði, og ég dáist að fólki sem hefur staðið, ekki nauðsynlega upprétt neitt, heldur bara staðið í gegnum stærstu áföllin sem dunið hafa á þeim. 

Varð þeirrar gæfu aðnjótandi fyrir mörgum árum síðan að njóta samvista við marga aðstandendur barna, í u.þ.b. mánuð á Landspítalanum.  Það gjörbreytti allri sýn minni á lífið, öllu verðmætamati, öllum viðhorfum til lífsins.

Sendi öllum í þessari baráttu bestu kveðjur.

ÞETTA LÍÐUR LÍKA HJÁ!

Ein uppáhaldssetningin mín og virkar á allt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vona að allir séu við góða heilsu.

Innlitskvitt.  

Guðrún B. (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband