Örvæntingarstjórnmál

Alveg hjartanlega sammála Steingrími.  Eina spurningin er sú af hverju hann beitir þessu þá ekki í eigin flokki?  „Þetta er í mínum huga ekki til marks um neitt annað en einhverja hyldýpis-örvæntingu sem er eiginlega erfitt að skilja, af hverju menn geta ekki bara jafnað sig og sleikt sárin í minnihluta og tekið því eins og menn.“  Eða er flokkur hans kannski samansafn af hópum, eða jafnvel einstaklingum sem hann ræður ekkert við?  Andskotans vesen er á þessu liði þínu Steingrímur!  Klúðruðu hverjum meirihlutaviðræðunum á fætur öðrum síðastliðið vor  tóku svo við Kórónajakkafataprinsinum sem gengur ekki í nærbuxum einu sinni skv. reikningum, í haust, og húka nú beygð og brotin undir ráðhúsveggnum eftir hundrað daga æðislegt traust og samheldið meirihlutasamband.

 

 


mbl.is Stjórnarskiptin til marks um örvæntingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Ég að sjálfsögðu tók eftir meintu nærbuxnaleysi,segir allt um minn hugsunarhátt þessa daganaÉg er að reyna að vera hinum megin við pólítikina

Birna Dúadóttir, 22.1.2008 kl. 15:36

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Asnalegt allt saman

Jónína Dúadóttir, 22.1.2008 kl. 19:33

3 Smámynd: Ingvar

Það er eiginlega komin full þörf á að setja kenninúmer á allar borgarstjórnirnar, bæði til að einfalda fjölmiðlum þeirra umfjöllun og okkur að fylgjast með.  (borgarstjórn # 01........#02..........#03..............osfv.)

Annars er þetta orðið spurning um að þeir skipti með sér forræðinu á borginni? td. mánuð í senn

Ingvar, 22.1.2008 kl. 23:41

4 Smámynd: Birna Dúadóttir

Birna Dúadóttir, 23.1.2008 kl. 01:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband