Skráður - skilinn

alveg mögnuð upplifun í gærkvöldi já eða í nótt.  Sýndi mér svo ekki verður um villst hvað kvenfólkið er rosalega vel upplýst.  Ég fór á pöbbarölt(sund) með vini mínum sem er nú ekki í frásögur færandi.

Vindur sér að okkur kona og segir við mig þú ert skilinn!  Já ég samsinnti því.  Þú ert ekkert búinn að ná þér í aðra!  Nei svaraði ég. -Nei ég veit.  Nú fóru að renna á mig þrjár grímur, að vísu hafði ég séð þetta andlit áður fyrir svo sem eins og á síðustu öld!!!  Fór að líta í kringum mig hvort einhver sem ég þekkti stæði glottandi hjá en enginn kom upp um sig með áberandi hætti a.m.k.  Eitthvað virkaði þetta áhugalaust því hún var rokin - í bili - sýndi sig að var reyndin seinna um nóttina. Nokkru seinna kemur önnur sem ég hef nú bara ekki séð fyrr.  Þú heitir Bjössi ekki satt? jújú-já þú skildir einhvern tímann í vor var það ekki? Jú í mars.  Einmitt konan fyrrverandi búin að ná sér í annan er það ekki? Ha jú það held ég að sé staðan segi ég svona að reyna að koma inn fleiri en einu orði, i því gengur einhver vinkonan hjá og hún hnippir í hana og byrjar:þetta er hann bjblablablablabalbbbbla hann var giftur henni blablablablabla, þarna lá bara í stórum dráttum líf mitt undanfarin ár á mínútu eða svo.  Eftir þetta dró ég mig aðeins í hlé og horfði undan bókahillu á fólkið streyma um, og hélt svo bara áfram að vera tilGrin Ótrúlegt hvað kemst fyrir- já ekki orð um það meir hérWink  Þetta kvöld tókst mjög vel punktur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Alveg eðal-upplýsingastreymis-keflvískt-fyrirbæri.Farðu varlega í rokinu,knús

Birna Dúadóttir, 30.12.2007 kl. 11:42

2 Smámynd: Ingvar

hahaha !!!  "Saumaklúbbarnir" klikka ekki á svona löguðu

En ertu viss um að þær hafi ekki eithvað verið að kanna "markaðinn"??

Ingvar, 30.12.2007 kl. 18:57

3 Smámynd: Björn Finnbogason

Ég hef mínar skoðanir en ætla ekkert að viðra þær núnaNenni hins vegar ekki að tjalda oft til einnar nætur.  Hjólhýsi, hús, höll, er svona frekar hugmyndin.

Björn Finnbogason, 30.12.2007 kl. 19:47

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það er sem sagt fylgst vel með framboðinu í kjötborðinu

Jónína Dúadóttir, 31.12.2007 kl. 07:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband